Andvari - 01.01.1881, Qupperneq 111
í Svíþjóð.
107
alþýðuskóla í Svíþjóð. Árið 1871 var tillag sveitanna
og ríkisins metið svo:
Laun kennaranna.................. 1,505,848 kr. 79 a.
Kýrfóður........................... 181,099 — 12 —
Eldiviður.......................... 177,009 — 98 —
Til aukakennara og barnaskóla .. 870,884 — 65 —
Til viðhalds á skólahúsum ......... 493,987 — 87 —
Til áhalda......................... 182,434 — 74 —
Seminaria ...................... , 146,500 — » —
Umsjón við skólana.................. 40,000 — » --
Eptirlaun kennara................... 30,000 — » —
Æðri alþýðuskólar................... 10,000 — » —
3,634,765 kr. 15 a.
Af kostnaðinum borguðu sveitirnar 2,431,423 kr.
15 a., en ríkissjóður hitt (1,203,322 kr.) Árið 1871
voru íbúar Svíþjóðar 4,204,177 og verður. kostnaðurinn
því hérumbil 90 aurar fyrir nef hvert. Ríkissjóður galt
1876 til alþýðumenntunar 2,561,550 kr. og 1879
2,802,225 kr. Útgjöld ríkisins hafa aukizt við það á
seinni árum, að fé hefur verið lagt til ýmsra hluta og
kennslugreina, er eigi voru áður. Ríkissjóður lagði t. d.
1876 20,000 kr. til alþýðuháskóla, 12,000 lcr. til þess
kenna Finnum og Lapplendingum, 56,000 kr. til eptir-
launa fyrir ekkjur kennara o. s. frv. Fátækar sveitir
fá og hjá stjórninni skólaáhöld með niðursettu verði.
— í skólasjóðum var 1871 1,688,808 kr. 18 a og í
styrktarsjóðum til fátækra pilta o. s. frv. 121,133 kr. 13 a.
Hinir æðri skólar Svía eru margir og miklir.
liærdir sltolar kallast «elementar]ároverk», oger
þeim ýmislegatilhagað. Ætlunarverk þeirraallra ersumpart
að mennta hvern sænskan mann, er vill fá mciri menntun
en alþýðuskólar geta veitt, og sumpart að búa þá undir
háskóia og aðrar æðri vísindastofnanir. Fyrirkomulag
hinna lærðu skóla er ákvarðað með lögum 1. nóv. 1878.