Andvari - 01.01.1881, Síða 84
80
Um nokkrar greinir
ef alinin er á 52 aura1. Meðan gjaldfrelsi hreppstjóra
stóð, jók það á greiðslur hreppsbænda, með því að
hreppstjórar voru lausir við tillag til sveitar. Árin
1812 til 1815 voru hreppstjórar í Glæsibæarhrepp að-
fengnir hreppstjórar í öðrum hreppum, og voru laun
þeirra þessi 3 ár 317, 339 og 370 f.; var tillagið miðað
við tillag efnabónda í hreppnum. Cndanþágu þessa
mistu hreppstjórar með konúngsúrsk. 14. apríl 1819
(sjá kanslbr. 24. s. m.), en skattfrelsið með kgsúrsk.
10. maí 1825.
Lesendrnir sjá nú, að forlagseyrir sveitarómaga fer
smámínkandi frá 1814, einkum eftir 1824, enda voru
nú aflir skynsamir menn farnir að sjá, að svo búið mátti
eigi iengi standa, því þótt árin væri góð utan 1821 til
22, stóð alt að kalla í stað, mannfjöldinn og búfjár-
talið, (sjá þá skýrsluna bls.57), frá 1810 fram undir 1830z.
En árið 1831 þverhattar fyrir; þá fellr ómagatalan úr
22 ofan í 17, og árið eftir ofan í 14, sveitastyrkrinn ofan
úr 988 fisk. ofan í 173 f., og árið eftir ofan í 123 f.
þaraf leiddi og, að aukatillagið færðist úr 2439 fisk.
ofaní 1391 og ári síðar ofaní 1068. í annan stað komst
nú á, þó eigi yrði fyllilega fyrr en árið 1833, ný út-
svarsregla, er var svo margfalt betri og réttlátari en
hin fyrri í alJa staði. En árið 1831 tók og nýr hrepp-
stjóri við, og þótt hinn eldri hreppstjóri væri í alla
staði hinn heiðrlegasti maðr og fult svo mentaðr sem
hinn nýi hreppstjórinn, þá var hann aftr fastari við kreddur
“instrúxins" en hinn. Hreppsbókin sýnir bezt, hve ágætr
þessi nýi hreppstjóri var, ráðdeiJdarsamr, sparsamr og
duglegr. Og álit mitt er, að hann hafi beztr hrepp-
‘) Árið 1797 var tillag hreppsbænda 1 sk. kúrant af hverju
lausafjárhundr,, og 1799 2 sk. Munr var á.
a) Urnburðarbr. lögstjórnárraðsins 8. júlí 1817 sýnir ljóslega,
að rýrna var fárinn átrúnaðrinn á gæðum "instrúxins>.