Andvari - 01.01.1881, Side 129
á Islandi.
125
töluverðan arð. Svo mætti smámsaman og jafnframt
gera ýmsar aðrar 'tilraunir sem óvissari væru, en þó
gagnlegt að reyna. fað gæti varla hjá því farið, að
fyrirmyndarbú, sem þannig væri stofnað á vænnijörð af
beztu mönnum í hjeraði, bæri sig vel og gæfi jafnvel
af sjer talsverðan arð, enda gæti það eigi heitið nje
verið fyrirmyndarbú í eiginlegum skilningi að öðrum
kosti.ii Á þeim fyrirmyndarbúum sem eru stofnuð af
almannafje, hefir höf. ekki eins góða trú; hann hyggur
að þau muni verða meiri á lopti, en segir, að «í raun--
inni sje mjög hætt við að slík stjórnarbú vantaði nokkuð
tii að bera sig sjálf.»
Einar vill hjer að búin beri sig sjáif og gefi enda
töluverðan arð af sjer, og það ættu þau nú líka að geta
gjört, að minnsta kost með tímanum. J>að er hins vegar
hjer sem svo opt raest komið undir dugnaði forstöðu-
mannsins. fannig sjer maður fjölda af bændum einatt
á allrabeztu jörðum, er líka í fyrstu hafa hlotið töluvert
erfðafje, þó vera stöðugt í skuldum og aldrei græða,
enda þótt þeir takizt ekki í fang «alls konar jarðabætar,
sem efasamt væri hvernig takast mundun. Og ef þessir
menn reiknuðu sjer töluverð árslaun sem forstöðumenn
fyrir búunum, þá yrðu skuldirnar þeim mun meiri á
þeim. En hjer er talað um fyrirmyndarbú, þarsem
forstöðumaðurinn getur verið við vakinn og sofinnjafnt
vetur sem sumar, svo sem hver annar húsbóndi, til að
bafa eptirlit með öllu. Ef húsbóndinn á þessu búi
befir góða fyrirhyggju, nennir sjálfur að vinna og leggur
ekki út í allt of stór og óviss fyrirtæki, þá ætti slíkt bú
^ð geta geíið töluverðan arð og líka að geta gefið gott
eptirdæmi í mörgu tilliti fyrir nágrannana. — En
l>ví næst leggur höf. það líka til, að «í sameiningu við
fyrirmyndarbúin ættu að vera bændaskólar,» og þar
®tti að veita tilsögn í bóklegri en einkum verklegri
búfræði; en við þetta hlýtur skoðunin að breytast töluvert,