Andvari - 01.01.1881, Side 17
Jón Gnðmundsson.
13
Árin 1859 og 1861 vaf Jón forseti alþingis og
leysti það starf ágæta vel af liendi sem við mátti búast
af honum jafnvönum þingstörfum, regluföstum og stökum
eljanar- og iðjumanni. J>ess er fyrr getið að liann
hafði þingsetu allt þar til er aukakosningarnar fóru
fram 1869; þá höfnuðu Skaptfellingar sínum forna
þingmanni, og er ekki laust við, að það sé vottr um
talsvert lauslyndi, ef ekki væri hægt að afsaka það með
því fyrirkomulagi sem er á kosningunum hér á landi,
gem oplar en einu sinni hefir sýnt að það er óhafanda,
og að það er eigi fátt er mælir með því að liverfa að
ráðum hins hyggna höfðingja Páls amtmanns Melsteðs.
Svo sem við var að búast, þá vildi sveitarfélag það
er hafði jafnfjölhæfan og reyndan mann í sínu liði og
Jón var færa sér í nyt dugnað hans og atorku; var
hann því kjörinn bæjarfulltrúi árið 1856 og gegndi liann
því starfi í 12 ár og af þeim 12 árum var hann 10 ár
oddviti hæjarfulltrúanna. Yarði hann af alefli réttindi
bæjarins, og lét sér í öllu um það hugað að ekki væri
af valdstjörninni í neinu skertr hinn fyrsti vísir
frjálslegrar sveitarstjórnar, er hér á landi var fenginn í
bæjarstjórnarlögum Reykjavíkr.
Öndverðan vetr 1868 fór Jón Guðmundsson ulan
og var ytra þann vetr mest til að létta sér upp, því
hann var þá orðinn maðr næsta lúinn, sem ekki var og
að undra, því að annir höfðu sí og æ hlaðizt á hann
frá því að hann kom til Keykjavíkr; því að auk starfa
þeirra er þegar er vikið á var sókt að honum úr öllum
áttum til ráðaneytis og málafiutnings, og bréf gongu
milli hans og manna um allt land. Fimm árum síðar
fór hann og enn utan; var það einkum í erindagjörðir
fyrir verzlunarfólag er hafizt hafði þá fyrir 2 árum í
Reykjavík mest fyrir forgöngu og hvatir hans, og var
hann aðalráðsmaðr þess félags hin síðustu ár æfi
sinnar, og náði það góðum þroska fyrir hans umsýslu