Andvari - 01.01.1881, Page 56
52
Um nokkrar greinir
og sé sveitaþýngslin eigi að síðr ólík í hreppunum, þá
liggja önnur rök til þeirra en tíðarfarið. Brevtist aftr
sveitaþýngslin alment í hreppum við hreppstj óraskifti,
og skifti þessi verði á ójöfnum tíma, þá eru hreppstjóra-
skiftin orsök til breyt.íngar á sveitaþýngslunum, og sanna
máltækið: «Skiftir, hverr á heldr». Eg óska því að
slíkar skýrslur yrði sem íiestar, því víst er um það, að
því fróðari er vér verðum um þau hin almennu lög og
reglur, er stýra þessum athöfnum vorum, því færari
verðum vér að stjórna hreppsmálum, og því minni verða
sjálfsagt sveitaþýngslin. Eg set nú sem víst, að menn
geti með ráðdeildarsamri og ráðvandri sveitastjórn fært
niðr sjálft aukatillagið á svo sem 5 til 10 árum í hrepp
um helmíng, og eru þá unnar góðar 100,000 kr. ár
hvert fyrir land alt. Af þessari tölu mætti stofna
nægilega stóran banka eitt árið, er sjálfsagt vera ætti
seðlabanki. En eg skal eigi að láta mig dreyma á þessum
stað, heldr láta skýrslurnar koma og þeim fylgja skýr-
íngarna, og að endíngu bendíngar fram í tímann.