Andvari - 01.01.1881, Síða 98
94
Um skóla
skólum stiptisins og senda þriðja hvert ár skýrslur allar
til kirkju- og kennslumálaráðaneytisius. far er skrif-
stofa, sem eigi hefur annað að gjöra, en að sýsla um
alþýðuskóla og það sem að þeim lýtur. Umsjónar-
maður er valinn í hverju stipti til 5 ára; á þeim tímum,
er ráðgjafinn tiltekur, fer hver um umdæmi sitt og lítur
eptir öllu, bæði að kennsla fari sem bezt úr hendi og að
skólahús séu hentug og vel úr garði gjörð; þeir eiga
að segja til þess sem miður fer, gefa kennurunum ráð
og leiðbeiningar og senda síðan skýrslu um ferði.r sínar
til ráðgjafans og stinga upp á breytingum og lagfæringum
þar sein þarf. Uinsjónarmenn hafa allir verið vauir og
vellærðir kennarar; þeir hafa mikil iaun og fá allan
ferðakostnað endurgoldinn.
í hverri sókn ákveður skólanefndin, hvenær börn
skuli byrja lærdóm. Öli börn verður þó að setja til bókar
fyrr en þau eru 10 ára; ef foreldrar eigi hlýða því boði,
sæta þeir fjársektum. Eí foreldrar vilja láta börn sín
læra heima, verða þau að fá leyfi nefndarinnar til þess,
þó verður að yfirheyra börnin í byrjun hvers missiris,
og ef þau þá eigi hafa tekið þeim framförum, er þau
skyldu, verða þau að sækja skóla. pau börn, er sökum
fátæktar eigi geta fengið föt og fæði hjá foreldrum
sínum meðan þau eru í skóla, fá svéitarstyrk. Fátæk
börn, sem eigi geta sókt skóla nema lítinn tíma, verða
að minnsta kosti er þau hætta lærdómi, að kunna það,
sem tiltekið er í lögum 18. júni 1842. Aðalfjöldi
sænskra barna er í skóla frá 7. til 14. ári.
Árið 1842 voru óvíða sérstök skólahús; nú eru þau
víðast hvar og surn ágætlega byggð, stór og vel vönduð.
Framan af voru mörg slík hús óhentug og illa löguð,
en 1865 sendi stjórnin út smábækur til allra sveita
með lýsingum og uppdráttum af hentugum skóla-
byggingum af ýmsri stæið, og við það færðist margt í
lag. Víða eru í skólahúsunum salir fyrir fundarhöld