Ritmennt - 01.01.2003, Qupperneq 87
RITMENNT
ÞÝDDIR REYFARAR Á ÍSLENSKUM BÓKAMARKAÐI UM MIÐJA 18. ÖLD
„Robinsonöður“ sem bók-
menntagrein
Eins og að framan var getið voru Þjóðverjar
fljótir að taka við sér eftir útkomu höfuð-
ritsins Robinson Crusoe árið 1719. Var það
strax vorið 1720 sem fyrsta þýðingin á
Robinson Crusoe kom út í Þýskalandi.
Fyrstu frumsömdu þýsku Robinsonsögurn-
ar eða stælingarnar lcomu út árið 1722, og
þar með var skriðan farin af stað. Frásögnin
af hinum sænska Robinson, Gustav Land-
kron, var fyrst gefin út árið 1724 í Frankfurt
am Main undir dulnefni.4 í Nurnberg í
Þýskalandi átti sagan eftir að koma út mun
oftar á 18. öld, eða þrettán sinnum, auk
Hollands, Svíþjóðar, Danmerkur og ís-
lands.5 Þetta sýnir hversu miklum vinsæld-
um sagan hélt fram eftir allri 18. öld.
Gustavs saga í íslenskri þýðingu Þor-
steins Ketilssonar hefur verið stytt mjög
milcið frá dönslcu fyrirmyndinni, sem er 55
síður og er vel hægt að ímynda sér hvar
klippt hefur verið af henni. Ég fæ ekki betur
séð en að í íslensku útgáfunni sé megin-
áherslan lögð á hin ótrúlegu ævintýri sem
Gustav lendir í og að skemmtigildið sé haft
í hávegum.
Hinn guðhræddi Þorsteinn Pétursson á
Staðarbakka (1710-85), sem kunnur er sem
einlægur píetisti, þekkti vel til sögunnar af
Gustav og hrakningum hans og reifar efni
hennar í sjálfsævisöguskrifum sínurn eða
innganginum að þeim, auk þess að líta til
hennar sem fyrirmyndar að eigin verki. Allt
bendir hins vegar til þess að það hafi verið
hin danska útgáfa Gustavs sögu frá 1743
sem hann hafi haft undir höndum þegar
hann hóf að rita ævisögu sína árið 1750.
Hann telur söguna vera sanna greinargerð
þessa ólánsama manns, og er það í samræmi
við inngang danska þýðandans, C.P. Rothe,
sem segir „indeholder sande historiske Be-
givenheder" og tekur sannleiksgildi verks-
ins til ræltilegrar umfjöllunar í þessum um-
rædda inngangi. Þorsteinn opinberar ástæðu
þess að hann ræðst í að skrifa sjálfsævisögu
sína grundaða á „æviminningum" Gustavs
Landlcrons:
Svoddan ævisögur eru næsta gagnlegar, þegar
menn segja sannleikann um sig eður aðra og
forðast alla hræsni og smjaðran. Til að athuga
svoddan lærdómsríka hluti hefur mér gefið orsök
og upphvatning ævisaga Gustavi Landkróns, sem
var ein aðalspersóna úr Svíaríki, en komst síðan
í landsútlegð, hrakning og ofsóknir stórar, varð
og hertekinn af Tyrkjum og pyndaður sárlega til
að kasta trú sinni, hvar til hann lét sig þó enga
dauðans ógnan hræra. Þegar Guð hafði hann nú
loksins undarlega frelsað úr öllum hans hörm-
4 í þessari fyrstu útgáfu bar sagan eftirfarandi titil:
Gustav Landcron eines Schwedischen Edelmannes
merckwiirdiges Leben und gefáhrliche Reisen. Auf
welchen er als ein warhafter Robinson sich mit ei-
ner getauften Turckin bey 12. Jahren in einer un-
bewohnten Insel wunderbahr erhalten,- auch son-
sten die erschrecklichsten Fatalitáten mit erstau-
nender Standhaftigkeit erduldet und úberwunden
hat; Bift er cndlich ganb unvermuhtet zu einer
rechten Glúckseeligkeit gelangen können. Nach
seinem eigenen etwas undeutliclien Concept mit
verbesserter Schreib=Art und darzu gehörigen
Kupfern, zum öfentlichen Druclc befördert durch C.
F. v. M. (dulnefni höfundar). Sagan er 720 síður í 8vo
broti, auk 8 síðna formála. Sjá Kippenberg, August.
Die Robinsonaden bis zum Jahre 1743, a) Die
Robinsonaden unter dem Titel: „Robinson". Robin-
son in Deutschland bis zur Insel Felsenburg
(1731-43). Hannover 1892. Bls. X.
5 2. útgáfa Gustavs sögu er frá árinu 1726. Síðari út-
gáfur kornu á árunum 1727, 1730, 1731, 1736, 1738,
1739, 1740, 1743, 1744, 1753, 1754, og 1770. Sagan
kom út á hollensku árið 1733, 1757 og 1771. Sjá
Gove, Philip Babcock. The Imaginary Voyage. Bls.
244-46.
83