Ritmennt - 01.01.2003, Page 90

Ritmennt - 01.01.2003, Page 90
SVANHILDUR GUNNARSDÓTTIR RITMENNT raun. Að þessu víkur Björn Markússon út- gefandi í formála sínum að útgáfunni á Bert- hold og Gustav: þær [þ.e. sögurnar] sýna manneskjunnar eymdar- fullt tilstand, og Guðs óumræðanlega forsjón, sem elur önn fyrir mönnum, og typtar þá sem líf- aða kálfa, sér sjálfum til verðugrar dýrðar, en sjálfum þeim til sáluhjálplegra nota og sannrar umvendunar. Boðskapurinn um rétt og rangt fær sem sagt að halda sér og hann er skýr, en munurinn á íslensku gerðinni og þeirri dönsku liggur í því að boðslcapnum er elcki troðið upp á les- endur með málalengingum og predikunum. Þótt aðeins lærdómskaflanum einum hefði verið sleppt sýnir það ákveðna afstöðu gagn- vart fyrirmyndinni. En staðreyndin er sú að flest í þessum anda fær að fjúka. Það kemur því kannski ekki á óvart að rekast á létt og skemmtilegt fimm erinda kvæði í lok ís- lensku gerðarinnar, þar sem segir frá ævin- týri söguhetjunnar, ást og munaði. Líkt og lærdómskaflinn í dönslcu og þýsku sögunni speglar hlutverk sögunnar og ætlunarverk, undirstrikar kvæðið gildi íslensku gerðar- innar sem skemmti- og afþreyingarbók- mennta sem auk þess má skilja sem andsvar við ákveðinni umvöndun. Útgefandinn stíg- ur fram í lokin og kynnir til sögunnar kveð- skap þýðandans byggðan á atburðum sem frá er greint með þessum orðum: „Inntak þess engelska Robinsons hefur prófasturinn sál. sr. Þorsteinn Ketilsson sett í eftirfylgj- andi vers." 1. Berthold nokkuð fór of fort. Far hans eldur klauf og mar, hertist aftur hyggjuport, hvar hann eyjan farsæl bar. 2. Hitti hann þar happið neitt, hratt sér nægtir saman batt, frítt þar níu ár og eitt átti að korta lífs framdrátt. 3. Hippolite heilnæmt happ hlaut af Berthold, lífs því naut. Giftist hönum, hryggðin slapp; hraut óyndið langt á braut. 4. Með sínum nægtum (nauð varð lin), nam að koma í Evrópam, sínum fór með sómavin samhuga í Amsterdam. 5. Englands til sín færði föng, fangaði í Lundún gæfusprang; engvan þar hans ævin löng angurfullan hlaut mótgang.7 Erlendar tískubókmenntir kynntar almenningi hér á landi Eins og áður sagði var brotið í blað í íslenskri bókmenningar- og útgáfusögu með þessari fyrstu útgáfu á þýddum reyfurum, enda höfðu samtímabókmenntir aldrei verið prentaðar hér áður. Frétt af þessum viðburði náði út fyr- ir ísland, því að síðla árs 1756 var birt umfjöll- un um útgáfuna í Kaupmannahöfn í ritinu Efterretninger om Nye Boger og Lærde Sager, þar sem hún var kynnt sem algjör nýjung og tekið fram að vel væri að henni staðið. Þessi umfjöllun kemur ekki á óvart, enda tekur Björn hlutverk sitt mjög alvarlega og fylgir bókunum þremur úr hlaði með ítarlegum og mjög athyglisverðum formálum, þar sem hann talar beint til lesenda. Þar kemur fram áhugi hans á að auðga bókmenntalíf þjóðar- 7 Þess Svenska Gustav Land-KRONS Og Þess Eng- elska Bertholds [...]. Bls. [344]. 86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.