Ritmennt - 01.01.2003, Side 101
RITMENNT
VÖKUMAÐUR, HVAÐ LÍÐUR NÓTTINNI?
og ástæðu að norðan verðu. Upp á því er haldin
vakt hverja nótt frá Krossmessu á vorin til Kross-
messu á haustin. Umboðsmaðurinn lætur kalla
frá Skansinum á hverju kvöldi tvo menn, sinn frá
hverju býli, eftir boðburði; verða það með tóms-
húsmönnum þrjár umferðir á sumri, með svolát-
andi orðum, að ef vökumenn sjá nokkur ófriðar-
líkindi, stykkjum skotið af skipum, eður báta frá
þeim að landi róa, þá skal sá eini strax hlaupa að
Landakirkju, sem er rétt í veginum, og hringja
klukkunni, og síðan í Skansinn. En hinn annar
gjörir vart við á þeim næstu bæjum, og svo hver
af sér. Eina vörðu plaga þeir að hlaða hverja nótt,
nær þurrt er, til eins vitnisburðar, að þeir hafi þar
verið trúir vakandi, en ei sofandi. Af þessu fjalli
sést um allt hafið kring um eyjarnar, nær og fjær,
í heiðskíru veðri.35
Þarna kemur Krossmessa36 fyrir lílct og í
Vopnadómi Magnúsar prúða frá 12. október
1581 þar sem hreppstjórar eru dæmdir
„menn til að kalla og eldkveikingar á hæstu
hæðum setja fyrir Krossmessu þar og alla
vega má reyk sjá í byggðir svo og slcylduga
til vita að kynda og vörð að halda sem
hreppstjórum þylcir trúlyndastir og léttvíg-
astir vera og sýslumann sem fyrst við varan
að gjöra."37 í Vopnadómi kemur einnig fram
sú skylda að „hver maður eigi lúður, að
hann rnegi öðrum benda og við vara þar því
má við koma."38
Islendingar voru löngum hræddir við ill-
þýði eins og sjóræningja. Skansinn í Vest-
mannaeyjum var endurreistur eftir Tyrkja-
ránið 1627 og yfir hann settur constabel eða
byssuskytta. Jón Olafsson Indíafari gegndi
embættinu 1639 en árið eftir tók Gunnar
Olafsson við og er talinn hafa þann starfa
frarn um 1660.39 Forvera hefur Jón Indíafari
átt í þessu embætti miðað við frásögn sonar
hans.40
Jón Indíafari hafði verið byssuskytta og
vaktari á Krónborgarsloti við Helsingjaeyri
um 1620 og áður vaktari við týliúsið í Kaup-
mannalröfn. Hann lýsir þeim störfum í ævi-
sögu sinni.41
Oddur Magnússon lögsagnari í Vest-
mannaeyjum dæmdi Vökudóm um 1670 og
er hann til í uppskrift ritaðri eftir minni
1704. Dómur þessi lrefur verið talinn að
nokkru byggður á Vopnadómi Magnúsar
prúða.421 Vökudónri þessunr segir:
Skal vakan uppbyrjast Krossmessu á vorin og
haldast alt svo lengi sem umboðsmaðurinn til-
segir eptir hentugleikum. En hver hér út í finst
óhlýðinn, svikull eður ótrúr, skal straffast eptir
atvikum og málavexti, svo sem sá, er þverúðar-
samlega af illvilja brýtur á móti yfirvaldanna
skikkun eður befalningu. Einninn slculu þeir
skyldugir vera að morni í skanzinn að fara og
segja til, að þeir hafi vakað.43
Ekki fer frekari sögum af vaktinni í Vest-
mannaeyjum.44 Engum sögum fer heldur af
vakt við Skansinn á Bessastöðum, sem
35 Gissur Pétursson (1938) bls. 97.
36 Krossmessa að vori er 3. maí. Krossmessa að hausti
er 14. september.
37 Alþingisbækm íslands I (1912-14) bls. 442.
38 Alþingisbækur íslands I (1912-14) bls. 443.
39 Sigfús M. Johnsen (1946) bls. 272-73.
40 Jón Ólafsson (1908-09) bls. 400. Pétur G. Kristjáns-
son skjalavörður benti mér á að Bogi Benediktsson
(1909-15) bls. 526 segir: „Erlendur Ásmundsson út-
nefndi 5. júní 1630 dóm um vökuna í Vestmanna-
eyjum." Dómabækur úr Vestmannaeyjum frá þess-
um tíma eru glataðar og fleira er ekki vitað um
þennan dóm.
41 Jón Ólafsson (1908-09) bls. 56 og áfram og 87 og
áfrarn.
42 Sigfús M. Johnsen (1946) bls. 274.
43 Jón Þorkelsson (1906-09) bls. 454. Einnig prentað
hjá Sigfúsi M. Johnsen (1946) bls. 274.
44 Um viðbúnað í Vestmannaeyjum síðar sjá Sigfús
M. Johnsen (1946) bls. 275 og áfram og Kristinn Jó-
hannesson (1968) bls. 130 og áfram. Fróðlegt til
97