Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Síða 26
Tímarit Máls og menningar
íslandi er hræddur við hænu. Nashyrningur barði hausnum af harmi
við tré og fíllinn hætti að slíta sér greinar og sagði þetta babúnapa
sem öskraði það í kátínu mót sólinni í birtingu næsta morgun.
En þá var ljónið löngu lagt af stað til Islands. Það hafði látið gera
boð fyrir tvo háhyrninga sem komu syndandi og renndu sér upp í
flæðarmálið og ljónið sagði háhyrningunum að ferja sig til Islands
og háhyrningarnir fóru dagfari og náttfari og skiptust á um að synda
með ljónið á bakinu. A öðrum degi sneri ljónið sér við og lagði
vangann að bakugganum og dottaði.
Háhyrningarnir komu upp til Islands í Hvalfirði á þriðja degi og
ljónið stökk í land og sagði þeim að bíða sín. Konungur dýranna
tölti í hlíðum og faldi sig bak við stóra steina þegar bílar fóru hjá,
hann hljóp sem leið lá eftir Esjunni, fór síðan með fjörum og lötraði
yfir veginn hjá Hlégarði og þar sá hann lítill drengur út um eldhús-
gluggann heima hjá sér. Hann hafði ekki getað sofið og fór fram að
fá sér djús í glas og rétt í þann mund gekk ljónið yfir veginn.
Ljónið kom að bænum snemma morguns. Scháferhundurinn var
að rífa í sundur ruslapoka. Hann hafði fundið lykt af tómri bauna-
dós og langaði að sleikja hana að innan. Bóndinn hafði oft harð-
bannað hundinum að gera þetta en nú var bóndinn sofandi og lyktin
af ruslapokanum var svo góð að Scháferhundurinn hafði ekki getað
staðist hana. Scháferhundurinn varð ákaflega aumingjalegur þegar
hann sá ljónið standa sig svona að verki í ruslinu.
- Eg lofa því að fara aldrei aftur í ruslið, tafsaði Scháferhundur-
inn.
Ljónið ræskti sig. Og þegar ljónið ræskti sig gægðist hæna út um
dyrnar á kofanum og henni varð svo hverft við að sjá ljónið að hún
varp eggi sem valt út um dyrnar og stoppaði ekki fyrr en á milli
steinanna tveggja, á sama stað og eggið sem oltið hafði hálfu ári áð-
ur.
- Er það rétt, spurði ljónið að þú sért svo huglaus hundur að þú
hlaupir undan hænu?
- Nei, herra konungur, sagði Scháferhundurinn, það er ég ekki,
en ég held það sé rétt að við förum saman og spjöllum við hænuna
svo þú fáir að vita hvað gerðist. Þannig er að þessi hæna er göldrótt,
hvíslaði Scháferhundurinn.
- Við skulum koma út að kofa og láta reyna á málið, sagði ljónið.
280