Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Side 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Side 49
AlcLrei gerði Kristur sálu Þórelfi, vorri móður . . . spjóti - og á eftir er líkinu misþyrmt lengi „að norrænum sið“ (15). Sveinn- inn gengur til föður síns: Blóð og heili vall út sem grautur þar sem brotinn var hausinn, en öll mynd var af andlitinu eftir höggin, skrapp til annar armleggur í axlarliðnum um leið og maðurinn linaðist í andlátinu, og var það kvik hans hinst. . . . Þorgeir Hávarsson stóð leingi úti áður hann geingi að segja móður sinni. Síðan gekk hann heim. Hann var þá sjö vetra. (16) Það kemur fram, að Þorgeir hefur talið föður sinn „einna mestan garp á Norðurlöndum“ (16), bæði vegna frægðarsagna Hávars sjálfs en þó miklu fremur vegna þess að sögur Hávars eru í samræmi við sögur móðurinnar af hetjum og köppum. Þorgeir litli þekkir þannig ekki föður sinn, hann þekkir aðeins þann föð- ur sem móðirin býr til. Þórelfur er í raun móðir hans og faðir frá upphafi. Það kemur fram að hún hefur þótt vargefin, hún er af betri ættum en Háv- ar og hennar einasta markmið í lífinu virðist vera að gera soninn að því stórmenni sem faðirinn aldrei var. I bókinni segir: „. . . þannig urðu fáar ástgjafar Þórelfar húsfreyu til handa syni sínum, utan hreystisögur af forn- köppum og sigurlof konúnga þeirra er gera framgjarna kotúngssonu sér að vinum með örlæti, og launa hjartaprýði með gildum baugum." (24). Aðeins einu sinni segir frá því að móðirin „hverfur ynnilega“ (50) til sonar síns en það er þegar hann stendur frammi fyrir henni eftir föðurhefndina og segir henni dráp Skeljabrekkunga; vopn unga mannsins og fötin eru skítug og al- blóðug, blóðslettur á andlitinu - hann hefur drepið í fyrsta sinn og þá hverfur móðirin til hans „ynnilega". En þó að „ástgjafar“ Þórelfar séu fáar er hún eina konan í lífi Þorgeirs, hann er haldinn af móðurinni og væntingum hennar. Hann vitnar stöðugt til frásagna hennar, en aðeins einu sinni vitnar hann til hennar sem pers- ónu. Sú tilvitnun er ákaflega íronísk; Jörundur prestur talar um sálir þær sem Kristur gerði mönnunum: Þorgeir mælti: Aldrigi gerði Kristur né aðrir tauframenn sálu Þórelfi vorri móður, og hefur hún þó alið óragan son. (64) Með föðurhefndinni lýkur þætti móðurinnar og við tekur samband Þor- geirs og Þormóðs. Skilgreining Þorgeirs á fóstbræðralaginu kemur fram í samræðum þeirra félaga á Ströndum, fóstbræðralagið er samningur frjálsra karlmanna sem ákveða að deila eignum og kjörum. Hvorugur þarf að leita til hins í nokkru efni af því að þeir eru jafningjar. Falli annar á hinn hefnd- arskyldu að gegna. 303
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.