Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 56
Tímarit Máls og menningar Ást Þormóðs á Þórdísi er líka full af tvískinnungi. Hann gefur sig sömu- leiðis á vald henni. Það er hún sem er húsbóndinn í Ogri á borði, þó að hann sé það í orði. Þegar Þormóður gerir upp samband þeirra um það bil sem þau skilja, lýsir hann því þannig að hann hafi fært fórnirnar, gert allt sem henni mátti verða að skapi sökum ástar sinnar á henni. Þau virðast bæði trúa því að samband þeirra hafi hamlað honum, smækkað hann. Samt, eða kannski þess vegna, tilbiður Þormóður konu sína, fegurð hennar, ást- ríki og forsjá. Tilbeiðsla hans á Þórdísi getur aðeins viðhaldist með Kol- brúnu í baksýn. Þegar Þórdís leggst með þræl sínum (eins og Kolbrún) hef- ur hún uppnumið þessar andstæður - og þá er ekkert eftir. Bæði Tristans- og Don Juanmynstrið lýsa „misheppnuðum" ástasam- böndum í þeim skilningi að samband elskendanna er tímabundið og dæmt fyrirfram. Hvers vegna? Hér að framan hefur verið sýnt að móðurleitin einkennir ástir Þormóðs Kolbrúnarskálds og hvernig Kolbrún og Þórdís leika á víxl fyrir honum hlutverk hinnar góðu móður og hinnar vondu. En um leið og þetta er sagt verður að undirstrika að móðurleit Þormóðs er leitin að hinni horfnu módur, konurnar sem ganga honum í móðurstað geta aðeins fullnægt þörfum hans en ekki þrá hans.7 Þormóður er látinn elska á meðan hann elskar og hann laðast, sogast að „hinu kvenlega“ af því að hann er skáld. Öfugt við Þorgeir Hávarsson þorir hann að láta kastast öfg- anna á milli en hann þorir ekki að staðnæmast á „hyldýpisbarminum“ og horfa ofan í djúpin, heldur flýr hann reynslu sína inn í nýja blekkingu. Þrá Þormóðs hættir að hverfast um konur og beinist að frægð, ódauð- leika, sjálfshafningu - og því meira sem hann fjarlægist ástina því meira af- skræmist líkami hans uns hann er orðinn óþekkjanlegur. Þannig á sig kom- inn leitar hann konungsins, þess sem á að fullnægja bæði þörf hans og þrá. IV Ólafur Haraldsson er enn flóknari persóna en fóstbræðurnir Þorgeir og Þormóður. Ástarsaga Ólafs er fljótsögð en á þeim fáu síðum í sögu hans sem fjalla um konur koma saman þættir úr tilfinningalífi bæði Þorgeirs og Þormóðs. Eins og Þorgeir er Ólafur Haraldsson sonur metnaðarfullrar, harðgeðja móður og föðurlaus. Móðirin sendir hann að heiman tólf ára, eins og móðir Þorgeirs. En öfugt við Þorgeir á Ólafur stjúpföður, Sigurð sú, sem bæði hann og móðirin fyrirlíta. Tristansmynstrið sem við sáum hjá Þormóði má sjá í kvennamálum Ólafs; það eru stöðugt meinbugir á ástum hans, hann syrgir Ingigerði þeg- ar hann er með Ástríði og vill komast aftur til Ástríðar þegar hann er með Ingigerði. Öfugt við Þormóð skipta þessar konur þó engu meginmáli í lífi 310
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.