Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 60
Tímarit Máls og menningar mál Olafs, „ræðusnilld" hans slær ekki ryki í augu nokkurs manns - hann er dæmdur til þagnar og einsemdar þangað til hann hefur lært mál inn- fæddra, þangað til hann hefur orðið að beygja sig fyrir því að hann er ekki til nema í samskiptum við annað fólk - á þess og sínum forsendum á víxl. Þetta er mikið niðurlægingarskeið í lífi Ólafs; hann hefur misst völd sín, fjölskyldu, vini og meira að segja málið. Honum er fenginn sá starfi að plokka holdið af rotnandi hauskúpum og uppúr þessum dauða, rotnun, þögn og niðurlægingu rís þörfin fyrir tilbeiðslu, fyrirgefningu - ást: Af gnótt Heilagrar Visku skilst nú Olafi konúngi hversu blítt faðmlag Krist- ur býður þeim mönnum er glutrað hafa sínum konúngdómi, og hve þolin- móður hann er að reisa þá ef þeir gerast honum eftirlátir, virðandi jafnan bænarstað manns, hvort er hann er stólkonúngur eða landrækur. (434) I liðsöfnuði Ólafs árið fyrir orrustuna að Stiklarstöðum er honum lýst sem breyttum manni. Hann getur ekki „þrautalaust“ án guðsþjónustu verið enda orðinn „málvinur Krists mikill“ (445). Hann furðar sig á því að hann fær ekki prestsþjónustu eftir að komið er til Svíþjóðar og fær þá að vita að Kænugarðskristni (grísk-kaþólska) sé bannlýst af Rómarkristni (rómversk- kaþólsku). Þetta angrar Ólaf. Hann á líka erfitt með að koma því heim og saman fyrir sér að Kristur vilji að hann fari með hundheiðna menn til að boða sanna trú í Noregi. En Ólafur getur ekki snúið við á þeirri braut sem hann hefur valið sér félagslega og pólitískt. Ræða Ólafs Haraldssonar kvöldið fyrir orrustuna á Stiklarstöðum er bæði óhugnanlegur og stórkostlegur texti. I upphafi ræðunnar lýsir kon- ungur vilja sínum: „Nú förum vér til og munum brenna land þetta í eldi“ (484). Því næst staðfestir hann rétt sinn til valda í Noregi með óljósu orða- lagi og nefnir ekki föður sinn í því sambandi heldur Krist keisara Meyar- son, sem hafi verið sinn „fulltíngismaður til allra hluta“. Til marks um ágæti Krists segir Ólafur frá hinu heilaga upphafi hans, sem sé sonur meyj- ar og „dúfunnar Helgrar Visku“. Ur þessu færist ræða Ólafs inn í mann- jöfnuð sem hljómar kunnuglega; „staur hans (þ.e. Krists), sá er lærðir menn nefna kross. . .“ er miklu stærri en „hamar Þórs“ (nánar tiltekið níu sinnum hærri og tólf sinnum þyngri). Þennan staur segist Ólafur hafa fært Norðmönnum og hælir síðan stjórnartíð sinni með nokkrum orðum. I þessum hluta ræðunnar má sjá undarlega hreyfingu; merkingin rennur til í kaflanum; í upphafinu skilur Ólafur á milli sín og Krists en samsamar sig honum (eða hann sér). Styrkleikatákn Krists, hinn mikla „staur“, færir Ölafur Norðmönnum, vald táknsins verður vald hans, verður hann sjálfur - hann gerir sig m.ö.o. að sjálfu tákni valdsins, fallosinum. 314
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.