Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 64
Tímarit Máls og menningar Því að reynslan af hinu óhugnanlega er þegar allt kemur til alls, hin hliðin á trúarlegum, siðferðilegum og hugmyndafræðilegum lykilatriðum, sem gegna því hlutverki að tryggja svefn einstaklinga og hneppa samfélögin í álög. Þess- um lykilatriðum er ætlað að hreinsa hið óhugnanlega og bæla það. En brjót- ist það sem bælt er fram, verður það „heimsendir" okkar og þess vegna kom- umst við ekki hjá dramatískum og krampakenndum trúarkreppum. (Powers of Horror, 209) Oll reglukerfi byggjast á grundvallarandstæðunum „inni - úti“. Það sem er innanvið er jákvætt, það sem við lokum úti er neikvætt eða ógnandi. Hetjuhugsjónin í Gerplu byggir á andstæðuhugsun þar sem allt kvenlegt er bannað, bælt, lokað úti. Og þá gerist það sem búast má við, því þrengra sem hringurinn er dreginn, því meira verður utan hans og því ógnvænlegra verður það - uns þeir sem byggja hringinn sjá sig tilneydda til að eyða því sem ógnar tilvist hans. Það sem gerir Gerplu að einni mögnuðustu bók sem ég hef lesið er að í henni er sýnt hvernig valdbeitingin er byggð inn í alla okkar menningu og þar með alveg inn í dýpstu persónugerð þeirra karlmanna sem bókin grein- ir. Þeir eru á flótta undan sínum eigin ótta, óhugnaðinum - en þeir flýja ekki inn í ástina heldur árásargirnina, hatrið. Gerpla er þannig heimsenda- spá og ákaflega tragísk bók. En í henni er líka húmor og íronía, afneitun á öllu viðteknu gildismati, hlátur sem kraumar í textanum. Og þar sem hláturinn er, þar er líka sú lífs- gleði sem er óvinur dauðans. 1. Shoshana Felman: „To open the Question", Yale French Studies, nos 55/51, 1977. 2. Halldór Kiljan Laxness: Gerpla. Helgafell, Rvk. 1952. Tilvísanir í svigum vísa til þeirrar útgáfu. 3. Þó að samkynhneigð karla væri algeng og viðurkennd í hinu forna Grikklandi var hún bönnuð meðal frjálsra borgara og varðaði borgararéttindi, vegna þess að annar borgaranna varð að leika hlutverk konu og gera sig þar með að þolanda. Þetta sýnir vel kvenfyrirlitninguna sem er hin hlið karlmennskudýrkunarinnar. Svipuð eða sama hugsun birtist í fornum norrænum lögum og bókmenntum. (sbr. Vigdis Solem: „Fra pederasti til filosofi. En presentasjon av Michel Foucault, L’usage des plaisirs (Histoire de la sexualité 2) Paris 1984.“ NFT 20 (1985), 139-162, og Folke Ström: „Níð, ergi and Old Norse moral attitudes", The Dorothea Coke Memorial Lecture in Northern Studies, May 1973, University of London. 4. Hjá persónunni Þorgeiri er táknmyndin aðeins táknmynd. Hann er látinn vera fullkomlega laus við allt ímyndunarafl og skopskyn á hann ekki til. (Um hugtökin 318
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.