Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 84
Matthías Vidar Sœmundsson Myndir á Sandi um frásagnarlist nútímaskáldsagna Hið hefðbundna sjónarmið: skáldið skyggnist í gegnum sérnöfn hlut- anna og afhjúpar eðli þeirra og dulin vensl. Það ræður heiminn eins og dulmál, vekur sofandi tákn, lætur þau ljóma að nýju í tungumáli sem öðru fremur einkennist af líkingalist, myndhvörfum, tungumáli sem eyðir mismun táknanna og fellir heiminn, reynslu manns í eina heild. Að þessu leyti fara örlög skáldsins og hins vitfirrta manns saman. Vitfirring- urinn er ómeðvitaður um mismun og sér hvarvetna teikn um hliðstæður. I vitund hans samsvarar eitt tákn öllum öðrum táknum'. Sjónarmið þetta á rætur sínar í þekkingarhætti liðins tíma. Það var öfl- ugt í tíð rómantísku stefnunnar og raunar má rekja það allt aftur til Endurreisnartímans ef marka má niðurstöður franska fræðimannsins Michels Foucault2. Hann taldi að vestræn þekking hefði fram til loka 16du aldar einkennst af samsvörunum: trú á einingu orða og hluta, faðm- lag þeirra, samstæður. Endurreisnarmaðurinn, sagði Foucault, hugsaði í jafngildum og líkingum. Samsvörunarlögmálið stjórnar ritskýringum hans og túlkun texta; það liggur táknkerfi hans til grundvallar, gerir vitn- eskju um sýnilega og ósýnilega hluti mögulega, er skilyrði sérhverrar orðræðu, réttlæting hennar. Heimurinn faðmar sjálfan sig, jörð speglar himin og auga stjörnu, fyrirbæri skarast og renna saman, tvöfaldast, mynda keðjur. Heimurinn allur lýtur reglu samúðar eða aðlöðunar, hið einstæða dregst að öllu öðru, krafturinn slíkur að án andófs rynni ver- öldin saman í kennimarkalausa heild - hið sama. Onnur regla, andúðin, veldur því að jafnvægi helst. Endurreisnarmaðurinn, sagði Foucault, trúði því að Guð hefði merkt fyrirbærin með teiknum er opinberi líkindi þeirra - sýnileg tákn ósýnilegra jafngilda. Þekkingarhátt Endurreisnar- innar, sagði Foucault, hæfir því að nefna „prósa heimsins“: Rúmið er líkast opinni bók með síðum sem þéttskrifaðar eru af táknum, dularfull- um merkjum er fléttast saman og endurtaka stundum sjálf sig. Mestu varðaði að lesa úr þeim, ráða þau. Teikn þessa heims eru oftar en ekki óljós og dulin, sagði Foucault, af þeim sökum fólst þekkingarleitin í 338
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.