Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Side 119

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Side 119
gat farið í taugarnar á honum, stráki eða unglingi, þegar frændi hans talaði um ágæti föðurættarinnar. Reyndar spyr hann sig hvort þetta skýri ekki viðhorf sitt til fræðigreinar sinnar, hvort hann aðhyllist hugarfarssögu en hafni mikil- mennasögu, vegna þess að hann er sjálf- ur ekki af mikilmennum kominn, eins og ffændi hans (87). Hann er því ekki blindur fyrir eigin mótsögnum, t.d. þeg- ar hann vekur athygli á því að það skjóti skökku við að hann, sem dreymir um að skrifa bók eins og Montaillou, sem lýsir hversdagslegu lífi smábænda í þorpi í Pýrenea-fjöllunum á miðöldum, ein- blínir í skrifum sínum á þær persónur sem komast næst því að vera fyrirfólk, þ.e. Nikulás og Oktavíu ogbörnin þeirra Ágústu Sól, og þó sérstaklega Símon Flóka (153). Þessi sögumaður, sem í senn er þátttak- andi í leiknum og þykist halda sig utan við hann, er því meira en skemmtilegt bragð hjá Pétri, og ef til vill það sem merkast er við bókina. Lesandinn verður að van- treysta sögumanninum, þ.e. taka það með í reikninginn hvernig staða hans í sögunni hefúr áhrif á hvað og hvernig hann segir ffá. Þetta er ekki spurning um að afhjúpa sögumann sem fer vísvitandi með blekk- ingar, eins og dæmi eru um í heimsbók- menntunum, heldur að lesa söguna í gegnum sagðar og ósagðar tilfinningar hans, sem um ffam allt eru margræðar og mótsagnakenndar. Ef til vill verður saga hvorki sögð né lesin nema með tilfmningum. Hún er ein- faldlega ekki saga nema tilfinningar knýi sögumanninn tif að taka til máls og les- andann að hleypi henni inn á sig. Þetta á við um gamansögur eða ævintýri, sem höfða til einfaldra kennda, en einnig um margslungnar skáldsögur, sem gjaman vinna með það sem er flókið og mótsagn- akennt í sálarlífi okkar. Raunar mótast af- staða okkar til umhverfisins yfirleitt af margræðum og mótsagnakenndum tilfinningum, ekki síst til þeirra sem okk- ur standa næst. Mætti nefna þessu til stuðnings eff irfarandi lýsingu sögumanns Efstu daga á hjónabandinu: „Samband hjóna er áreiðanlega and- stæðufyllsta uppfinning sem mannlífið býður upp á. Ekki einusinni stjórnmála- flokkur rúmar jafti mótsagnakenndar tilfinningar: ást haturöfund sjálfsfórn— allt í einum pakka (133).“ Þetta á ekki síður við um önnur sam- bönd, risti þau djúpt á annað borð, en okkur er ekki tamt að Iíta þannig á líf okkar og stundum geta mótsagnirnar vafist fýrir okkur. n Franska skáldið Paul Claudel hefur sagt að markmið allra góðra bóka sé að kenna að lesa. Þessi orð kunna að hljóma eins og öfugmæli, en ég held að í þeim felist mikilsverð sannindi. Góðar bók- menntir, og ef til vill sérstaklega góðar skáldsögur, kenna okkur að einfaldar hugmyndir duga ekki þegar tilveran og samband okkar við hana eru annars veg- ar. Hún er margslungin og full mót- sagna, en heiðarlegar skáldsögur eru tilraun til að ná utan um það og rýna í tvíbenta afstöðu okkar til veruleikans. Lestur slíkra sagna er nám, því hann kennir okkur að lesa úr mótsögnum eig- in lífs. Efstu dagar er að mínu mati slík kennslubók í lestri og þar skiptir mestu máli hvernig Pétri hefur tekist upp við að skapa þennan sögumann sem er í svo andstæðufullu sambandi við viðfangs- efni sitt. Eins og fyrr segir er Símon Flóki nokkurs konar alter ego eða annað sjálf Símonar sögumanns: sá sem hann hefði getað orðið hefði móðir hans gifst Nikulási en ekki Tona. í þeim langa hluta sögunnar sem fjallar nær einvörðungu um Flóka: bílslysið, samdráttinn við Veru, námsárin, prestsskapinn og loks TMM 1995:3 117
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.