Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 32
„Sjáið merkið, Kristur kemur, krossins tákn hann her“
Áhrif hersetunnar voru auðvitað ekki öll jafn heilnæm og ýmsir guldu
varhuga við ástandinu sem skapaðist. En einkennileg þversögn er það
engu að síður, að í skjóli stríðsátaka og veru erlends setuliðs í landinu skuli
íslensk þjóð hafa lýst yfir fullu sjálfstæði og fagnað nýfengnu frelsi á
afmælisdegi Jóns forseta og Háskóla íslands, þann 17. júní 1944.
Að vaxa úr grasi til aukins frelsis innan um erlenda soldáta og aukið
skotsilfur hlaut að setja mark sitt á uppvaxandi kynslóð. Eins og kálfar að
vori slettu sumir úr klaufunum og gömul gildi áttu víða undir högg að
sækja. En á þessum umbrotatímum hélt starf KFUM ótrautt áfram þar
sem ungir menn voru hvattir til heilshugar eftirfylgdar við Jesú Krist og
lögð var áhersla á kristin trúar- og siðgæðisviðmið. í sumum söngvum sr.
Friðriks, sem sungnir voru á hverjum KFUM-fundi, kom einnig fram
skýr og ákveðin herhvöt til ungra manna að fylkja sér undir merki
konungsins Krists í baráttunni gegn myrkraher og syndasveimi.5
Áhersla var lögð á skýran afturhvarfsboðskap og menn hvattir til þess að
láta ekki glepjast af gylliboðum heimsins.
Þáttaskil í Vatnaskógi
Meðal áhrifamestu starfstækja KFUM voru sumarbúðir félagsins í
Vatnaskógi, Kaldárseli og víðar. Sem tíu ára snáði fór Jónas Gíslason í
Kaldársel sumarið 1937 og næsta sumar í Vatnaskóg. Sumarið 1939
dvaldi hann í sveit í Skagafirði en fékk svo aftur tækifæri til að dvelja í
Vatnaskógi hernámsárið 1940. Jónas segir að sú dvöl hafi verið sér
þýðingarmikil:
Þá urðu þáttaskil í lífi mínu, því að þar mætti ég kalli Krists, er sagði við
mig:
„Fylg þú mér!“
Þar flutti ég minn fyrsta trúarvitnisburð og þarna har ávöxt í lífi mínu
boðun orðsins, sem ég hafði heyrt á fundum félagsins. I þessum dvalar-
flokki eignuðust allmargir drengir trúarsannfæringu.
Ég hóf að sækja almennar samkomur KFUM og KFUK, áður en ég var
orðinn nógu gamall til að mega ganga í unglingadeildina, UD, en aldurs-
lágmarkið þar var fjórtán ár. Segja má með miklum sanni, að KFUM-
húsið við Amtmannsstíg 2 B hafi verið mitt annað heimili óll unglingsárin.
Sjá t.d. söngva sr. Friðriks: Áfram, Kristsmenn, krossmenn, - I öllum löndum lið sig
býr og Sjáið merkið!, Kristur kemur.
30