Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 62
Vér vinnum verkið
Starf þeirra hefur fært íslenzkri þjóð meiri blessun en flest annað, sem
saga okkar geymir.
Við höldum hátíð í dag í minningu þess, sem þeir gjörðu. Við þökkum
Guði djörfung þeirra, staðfestu og þor. Þeir áttu öllu að tapa.
A 175 ára afmæli Hins íslenzka Biblíufélags minnumst við frumherj-
anna, sem hófu starf félagsins, og heiðrum minningu þeirra, um leið og við
þökkum Guði líf þeirra og starf. Sérstök ástæða er til þess að nefna
Ebenezer Henderson, þann mæta mann, er átti ffumkvæði að stofnun
Hins íslenzka Biblíufélags.
Nú er að okkur komið að halda merki Biblíufélagsins hátt á loft og halda
áfram starfi frumherjanna. Starfinu að þýðingu Heilagrar Ritningar
lýkur aldrei. Texti hennar verður jafnan að fylgja eðlilegum breytingum
tungunnar á hverjum tíma og vera á auðskildu máli fyrir hinn almenna
biblíulesanda.
Nú er hafin ný þýðing Gamla testamentisins og stefnt að útgáfu hennar
á 1000 ára afmæli kristnitökunnar á íslandi. Notum næsta áratug til
þess að vinna að eflingu Hins íslenzka Biblíufélags, svo að það verði betur
hæft til þess að sinna háleitu hlutverki sínu.
VIII
Við erum stödd hér á helgum stað. Hér hefur mikil saga gjörzt, sem við
aldrei megum gleyma.
En lausn á vanda samtímans felst þó aldrei í því einu að horfa um öxl.
Við þurfum einnig að horfa fram á veginn.
Sögu Skálholts er langt frá lokið. Það á enn mikilvægu — og nú
vaxandi — hlutverki að gegna fyrir þjóð og kirkju.
Það var þeim mönnum ljóst, er fyrir hartnær hálfri öld hófust handa
um endurreisn Skálholts. Giftusamlegt starf þeirra hefur borið ríkulegri
og skjótari ávöxt, en flestir þorðu að vona. Við þökkum þeim ötult starf í
þágu Skálholts. Mun á engan hallað, þótt aðeins eitt nafn sé nefnt í því
sambandi, — nafn dr. Sigurbjörns biskups Einarssonar.
Nú bjarmar fyrir þáttaskilum í sögu Skálholts. Biskupsstóll er
endurreistur á ný, þótt í smáu sé í fyrstu.
Fyrsta skrefið er þó alltént stigið.
Enn er komið að okkur að halda áfram endurreisnarstarfinu.
Megi fordæmi þeirra manna, sem hér hefur verið minnzt sérstaklega,
verða okkur lýsandi fordæmi í framtíðinni.
Guð gefi, að viðbrögð okkar við óleystum verkefnum dagsins hér í
Skálholti verði hin sömu og ungu mannanna forðum, — að við segjum sem