Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 37
Þórarinn Björnsson
guðfræðideild Háskóla íslands, en Sigurbjörn var meðal annars
félagsmaður í KSF og annað veifið ræðumaður á fundum félagsins. í
október 1944 fékk hann skipun í embættið og má segja að með þeirri
veitingu hafi verið rofið varanlegt skarð í einokunaraðstöðu nýguðífæðinnar
í deildinni. Þeim tímamótum var fagnað í Kristilegu stúdentablaði þar
sem sagði meðal annars:
Kristilegt stúdentablað fagnar því eindregið, að svo vel skyldi takast
með kennaraval til deildarinnar og telur, að skipun hans í embættið verði
til mikillar blessunar fyrir deildina, enda er síra Sigurbjörn kunnur
gáfu- og kunnáttumaður.14
í desember 1944 gerðust einnig þau tíðindi að sjö guðffæðinemar sóttu
um inngöngu í KSF. En þegar sjömenningunum höfðu verið kynnt lög
félagsins og grundvallarmarkmið drógu þeir umsókn sína til baka en
stofnuðu í janúar næsta ár annað kristilegt stúdentafélag sem fékk nafinð
Bræðralag og var markmið þess að efla bræðralag í anda Krists og
heilbrigt trúarlíf með þjóðinni, samanber lög félagsins.15 Sigurgeir
Sigurðsson biskup, nokkrir kennarar guðffæðideildar og ýmsir prestar
gengu fljótlega til liðs við hið nýja félag sem lifði í rétt liðlega tvo áratugi. í
kirkjublaði Sigurgeirs biskups var tilkomu Bræðralags meðal annars
fagnað með eftirfarandi orðum:
Það er vel, að stúdentar hafa nú bundizt samtökum til eflingar víðsýns
kristindóms. Þess er hin mesta þörf, að allir, og þá ekki sízt hinir ungu
menntamenn, gefi gaum hinum andlegu málum og því, að menningfuj
framtíðarinnar verður að reisa á meginhugsjónum Jesú Krists, ef vel og
giftusamlega á að fara.16
Staðan var því sú, þegar Jónas Gíslason tók við formennsku í KSF
haustið 1946, að tvö kristileg stúdentafélög störfuðu við Háskóla Islands. í
Bræðralagi voru menn á borð við Asmund Guðmundsson prófessor og
Sigurgeir biskup sem gengu í broddi fylkingar og flestir samstúdentar
Jónasar í guðfræðideild völdu einnig að ganga til liðs við hið nýstofnaða
félag. Þannig var KSF komið í samkeppni um hylli íslenskra stúdenta og
var þess heldur ekki langt að bíða að í odda skærist með félögunum.
Haustið 1946 fór Bræðralag fram á að fá að sjá um guðsþjónustu sem
yrði liður í hátíðahöldum Stúdentaráðs 1. desember það ár, en hefð var
14 Kristilegt stúdentablað IX. árg., 1. des. 1944 bls. 11.
15 Fundargerðarbækur og lög Bræðralags eru varðveitt í Guðfræðistofnun HÍ.
15 Kirkjublaðið 3. árg., jólin 1945 bls. 2.
35