Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Síða 82
Deilur urn Odda
Ég tel hins vegar mjög hæpið, að þessi frásögn fái staðizt, eins og Jón
biskup Helgason réttilega bendir á.4 Mun ég leitast við að gjöra nokkra
grein fyrir sögu síra Jóns Einarssonar, ef vera kynni, að takast mætti að
varpa skýrara ljósi yfir þetta atriði siðbótarsögunnar.
II
Hvorki er vitað um fæðingarár né fæðingarstað síra Jóns Einarssonar
með nokkurri vissu. Foreldrar hans voru Einar Þórólfsson, bóndi á
Hofsstöðum og síðar Knerri á Snæfellsnesi, og kona hans, Katrín
Halldórsdóttir, ábóta á Helgafelli Ormssonar.5 Einar bóndi kemur
nokkuð við bréf, var m.a. eitt sinn umboðsmaður Diðriks Pínings,
hirðstjóra.6
Þau hjónin brugðu búi 1493 og gjörðu þá samning við munkana á
Helgafelli um að fá að dveljast í klaustrinu í próventu.7 Þau hafa verið
allvel efnum búin eins og fram kemur í þessum samningi. Upp frá því
hafa þau hjónin sennilega dvalizt lengstum í klaustrinu,8 þótt Einar hafi
farið til alþingis9 og annað.10 Af því má fullvíst telja, að hann hafi verið
orðinn mjög hrumur, þótt próventumaður væri. Ekki er vitað með vissu
um dánarár hans, nema hann er dáinn fyrir 1532.11 Sennilega deyr
hann alllöngu fyrr. Einars er seinast getið á lífi 11. júní 15ll,12 svo
öruggt sé. Sterkar líkur benda til, að hann sé enn á lífi 8. september
1512. Þá er hans getið í vitnisburði, án þess að hann sé sagður dáinn.
Hins vegar er í sama vitnisburði talað um Þorleif heitinn.
Þau hjónin Einar og Katrín áttu allmörg börn. Merkust voru síra Jón
Einarsson, sem hér er íjallað um, Þórður prestur í Hítardal, Þorleifur,
bóndi á Knerri og sýslumaður í Þórsnesþingi, faðir Orms á Knerri, Ormur
í Saurbæ á Kjalarnesi, sem veginn var í Viðey 1519 af Erlendi
4 JH:KÍ-II:3-5.
5 BB:Sýsl.-III: 22, 254.
6 DI-VIII: 292.
7 DI-VII: 225.
8 DI-VII: 235, 249, 435; VIII: 65.
9 DI-VII: 319, 499.
10 DI-VII: 557, 724.
11 DI-IX: 511.
12 DI-IX: 292.
80