Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 163
Jónas Gíslason
Þessi skoðun mætti mikilli mótspyrnu í frumsöfhuðinum og hjá upp-
runalega postulahópnum og Guð þurfti að sannfæra þá sérstaklega um
þessa breyttu stöðu eftir að Jesús Kristur hafði fúllkomnað hjálpræðis-
verkið.
í stað þess að rekja sögu allra postula Krists, flytur Postulasagan
frásöguna af því, hvernig Guð lauk upp augum postulanna fyrir þeirri
breytingu, sem varð, þegar Jesús Kristur gaf líf sitt á krossinum, reis
upp frá dauðum og vann sigur yfír valdi dauðans í mannheimi. Þar með
var fullkomnað það hjálpræðisverk, sem Guð hafði þegar eftir syndafallið
heitið að vinna til að frelsa manninn undan valdi syndarinnar og leiða
hann aftur til samfélags við sig. Hjálpræðisverkinu var lokið.
Biblían greinir frá því stig af stigi, hvernig Guð fór að því að frelsa
manninn og veita honum aftur samfélag við sig.
1. Guð skapaði manninn í upphafí eftir sinni mynd til samfélags við sig.
2. Við syndafallið rofnaði þetta samfélag og maðurinn var útilokaður frá
Guði.
3. En Guð sneri ekki baki við manninum, þótt hann hefði snúið baki við
Guði. Hann gaf fyrirheitið um Messías, sem koma mundi til þess að frelsa
mannkynið. Og hann útvaldi sérstaka þjóð, Gyðingana, sem sérstakan
eignarlýð sinn og hjá þeim átti Messías að fæðast. Þannig áttu Gyðingar
einir aðgang að Guði vegna fyrirheitisins.
4. Eftir að dreifing Gyðinga hófst og þeir settust að víðs vegar í
nágrannalöndunum, hófu þeir trúboð meðal heiðingjanna, og þeir, sem
tóku gyðingatrú, eignuðust þá hlutdeild í fyrirheitum Guðs og um leið
möguleika til guðssamfélags.
5. Eftir krossdauða Krists og upprisu gátu þeir einir, sem trúðu á
hann, eignazt samfélag við Guð. En staða heiðingjanna var óbreytt að mati
postulanna og frumsafnaðarins. Þeir yrðu enn að taka gyðingatrú, áður en
þeir gætu eignazt samfélag við Guð fyrir trú á Krist.
6. En eftir að Kristur hafði fullkomnað hjálpræðisverkið, breyttist þessi
staða mannsins gagnvart Guði. Sérstæðu hlutverki Gyðinganna var lokið
með komu Krists og gyðingdómurinn var ekki lengur nauðsynlegt millistig
fyrir heiðingjana, áður en þeir gætu eignazt samfélag við Guð. Heið-
ingjarnir áttu hér eftir beinan aðgang að Guði fyrir trúna á Krist.
Þetta áttu fræðimenn Gyðinga erfitt með að skilja, sem og kristnir
Gyðingar. Postularnir og frumsöfnuðurinn héldu fyrst í stað, að gyðing-
dómur væri áfram nauðsynlegt millistig milli Guðs og manns og heiðingjar
yrðu að ganga undir lögmál Gyðinga, áður en þeir gætu eignazt trú á
Krist.
161