Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 189
Jónas Gíslason
Bjarni Benediktsson var í fararbroddi í íslenzku þjóðlífi og um hann
næddi meir en flesta aðra, en hann flýði hvorki af hólmi né reyndi að
kaupa sér stundarvinsældir.
Eftir því sem á ævina leið, jókst stöðugt tiltrú almennings til Bjarna.
Hann haslaði sér völl sem einn allra fremsti forystumaður íslenzku
þjóðarinnar og naut vaxandi trausts og virðingar langt út fyrir eigin
flokk sem heiðarlegur og réttsýnn stjórnmálamaður, er ekki varð sakaður
um að ota eigin tota.
Mér er minnisstætt, að tengdafaðir minn, er hafði verið jafnaðarmaður
og varð síðar sósíalisti, sagði eitt sinn, er mikla erfiðleika bar að höndum:
„Ætli hann Bjarni Benediktsson bjargi því ekki?“
Bjarni varð einn þeirra fáu íslenzku stjórnmálaleiðtoga, er vegna
persónulegra eiginleika sinna og mannkosta nutu virðingar og trausts
velflestra Islendinga.
Bjarni kaus sér stjórnmálin að viðfangsefni, en áhugamál hans voru
mörg og fjölþætt og hann hefði víða getað orðið forystumaður.
Meðan hann var prófessor við lagadeildina, skipaði hann sér í fremstu
röð íslenzkra lögfræðinga og gat sér gott orð sem fræðimaður. Bundu
margir miklar vonir við hann á sviði vísindalegrar lögfræði.
Hann var flestum mönnum fróðari um íslenzka sögu, enda bjó hann
þar að góðu veganesti úr foreldrahúsum. Þarf ekki að efa, að hann hefði
einnig getað skipað sé í fremstu röð íslenzkra sagnfræðinga.
Þá var hann gjörkunnugur íslenzku atvinnulífi, enda gjörði hann sér
far um að kynnast öllum aðstæðum, svo að hann gæti betur áttað sig á,
hvar lausn væri að finna, er vanda bar að höndum.
Öllum kunnugum ber saman um, að Bjarni hafi átt mikilhæfa
eiginkonu, er var honum styrk stoð í öllu starfi hans. Þau voru einhuga
og samhent.
Og hún bjó honum gott heimili, þangað sem hann sótti hvíld og
endurnæringu.
Sigríður Björnsdóttir stóð sig vel í stöðu sinni og var honum fyllilega
samboðin.
Mér finnst táknrænt, hve miklu ástfóstri þau tóku við Þingvelli,
helgasta sögustað íslenzkrar þjóðar. Þar undu þau flestum stöðum betur
og sóttu þangað styrk og hugsjónir til starfa.
Það má því heita verðugur rammi um líf þeirra og starf, að einmitt þar
skyldi saga þeirra öll. Og dóttursonurinn fylgdi þeim.
Þau voru tengd Islandi sterkum böndum og landið lagði þau að brjósti
sér á helgasta stað sínum.
Bjarni bar mikla virðingu fyrir kristinni kirkju og vildi efla hana til
aukinna áhrifa í þjóðfélaginu.
187