Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 85
Jónas Gíslason
Augljóst er, að síra Jón er einn með mestu virðingarmönnum
Ögmundar og dvelst með honum langdvölum í Skálholti, þótt ekki sé vitað
nú, hvort hann hefur gegnt þar sérstöku embætti um þetta leyti. Meðan
Ögmundur dvelst ytra í vígslufór 1520-1522, fer síra Jón með
officialisvöld á Vestfjörðum,33 jafnvel einnig í öllu Skálholtsbiskups-
dæmi.34 Ögmundur biskup Pálsson hefur því þegar í upphafí biskups-
dóms síns metið síra Jón Einarsson einna mest allra sinna klerka.
III
Eftir að Ögmundur biskup kemur heim frá vígslu, bendir ýmislegt til
þess, að síra Jón hafi áfram dvalizt með biskupi í Skálholti, enda hður
skammur tími, þar til deilur hefjast við síra Jón Arason og Norðlendinga
um eftirmann Gottskálks biskups Nikulássonar á Hólastóli. í þeim
deilum kemur síra Jón nokkuð við sögu eins og hér mun stuttlega rakið.
Ögmundur biskup Pálsson leggst mjög ákveðið gegn biskupsdómi síra
Jóns Arasonar og gjörir ítrekaðar tilraunir til að ná Jóni á sitt vald.
Ögmundur vildi sjálfur ráða biskupskjöri nyrðra og reynir að beygja
norðlenzka klerka til hlýðni við vilja sinn í skjóli þess, að honum hafði verið
fahð eftirlit með Hólastóli 1522, meðan biskupslaust væri þar, svo sem
venja var við slíkar aðstæður. Hins vegar gekk hann miklu lengra en
hann hafði umboð til. Annars verða þessar deilur ekki raktar hér, aðeins
minnzt á þátt síra Jóns Einarssonar í þeim.
I fyrstu virðist síra Jóns Einarsson gæta lítt í þessum deilum. Þó situr
hann í Reykjadómi 16. febrúar 1523, sem Ögmundur biskup útnefnir til
að dæma um kærur sínar gegn síra Jóni Arasyni. Auk þess er einhver
síra Jón Einarsson nefndur í hópi „presta Hólabiskupsdæmis“ í dómi 16.
apríl 1523 á Hólum útnefndum af Ögmundi til að dæma um kærur
biskups gegn síra Jóni Arasyni fyrir rán á eignum Hólastóls.35 Nú er
ekki vitað um Jón Einarsson prest í Hólabiskupsdæmi á þeim tíma, er
erfitt er að segja til um, hvort hér muni átt við síra Jón Einarsson, síðar
prest í Odda, eða ekki, þótt það verði að teljast vafasamt.
Sagt er, að Ögmundur biskup sendi þrisvar menn norður að Hólum til
að lesa stefnu- eða bannfæringarbréf yfir síra Jóni Arasyni. Seinastur
þessara sendimanna er sagður síra Jón Einarsson. A síra Jón Arason að
hafa tekið vel á móti nafna sínum og haldið honum veizlu. Síra Jón
33 DI-VIII: 564.
34 DI-VIII: 614, IX:74.
35 DI-IX: 112.
83