Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Qupperneq 93
Jónas Gíslason
5) Minna má á, hve mikið traust Ögmundur biskup sýnir síra Jóni alla
tíð eftir þetta. Hann heíði sennilega verið öllu varkárari, ef síra Jón hefði
gjörzt ber að trúvillu.
6) Loks má geta þess, að víða um lönd, þar sem siðbótin komst á, er
einmitt að finna frásögur af einstökum prestum, sem tóku að prédika
gegn dýrlingadýrkun og helgra manna ákalli rómversku kirkjunnar.
Slíkar sögur hafa hæglega getað valdið því, að þessi frásaga um síra Jón
myndast eftir siðbót til þess að auka veg íslenzkra manna í baráttunni
fyrir framgangi siðbótarinnar.
Mér sýnist þetta nægja til að sýna, að frásaga síra Jóns Egilssonar af
kyndilmessuprédikuninni fái ekki staðizt. Deilur síra Jóns og Ögmundar
biskups eru af allt annarri rót, sem söguritara er sýnilega með öllu
ókunnugt um. Því verður að mínum dómi að telja þessa frásögn tilraun til
að skýra þessar deilur, tilraun, sem styðst við munnmálasögur á þeim
tíma, sem þær eru færðar í letur.
Hitt þarf ekki að vera ótrúlegt, að orðaskipti þau, sem tilgreind eru um
Pál postula, hafi getað átt sér stað milli Ögmundar biskups og einhvers
fylgjanda hins nýja siðar, því að þau eru Ögmundi lík.
Samkvæmt þessu verð ég að hafna þeirri frásögu, sem af flestum hefur
hingað til verið talin til staðreynda, að síra Jón Einarsson, prestur í Odda,
prédiki fyrstur manna á Islandi í anda siðbótarmanna.
Það er ekki einu sinni hægt að sanna, að síra Jón Einarsson hafi verið
fylgjandi siðbótinni.
VIII
Eins og áður er að vikið, verður ekki annað séð en full vinátta hafi aftur
tekizt með þeim síra Jóni Einarssyni og Ögmundi biskupi, eftir að deilum
þeirra um Oddann lauk. Augljóst er, að eftir 1530 er síra Jón einn
nánasti vinur og trúnaðarmaður Ögmundar biskups.58 Á alþingi 1534
útnefna síra Jón og Sigmundur Eyjólfsson, systursonur Ögmundar,
saman dóm á vegum biskups.5® Síðar sama sumar er síra Jón á yfirreið
með Ögmundi á Vestfjörðum, því að þar kemur hann víða við bréf og
dóma.60 Tveimur árum síðar virðist hann enn vera með biskupi á
58 DI-IX:432, 474, 489, 507, 526, 544, 555, sbr. 379, aths. Árna Magnússonar.
59 DI-IX:577.
60 DI-IX:582, 583, 584, 588, 591.
91