Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR HALLGRÍMS PETURSSONAR
Að „standa á höfði" var ekki talið að fullu leyst, nema staðið
væri óstuddur. Svo telur og Jón Olafsson frá Grunnavík. Ef stuðzt
var á aðra hönd var staðið á tveim höfðum, og þótti vesældar-
merki. Væri báðum höndum brugðið fyrir, var sá, er framdi þrí-
höfðaður. Þótti það benda til lítillar greindar.
Að „steypa klukku". Olafur Davíðsson tilfærir ýmislegt, sem
hann gizkar á, að hafi heitið „að steypa klukku," t. d. að fara koll-
hnís, — kollskít öðru nafni, — fara gegnum sjálfan sig, sem al-
þekkt var, og loks að stinga sér á bita eða velta sér um bita, sem
mun hafa verið eitt og hið sama. Sá, er leikinn framdi, settist
þvert á bitann þannig, að bitinn lægi í hnésbótum, stakk sér svo
snöggt aftur og niður, að hann kom upp á bitann aftur án þess að
sleppa honum, þ. e. hann snerist um bitann og á honum, helzt
oftar en einu sinni. Olafur kveðst og hafa séð í handriti: „steypa
krukku", en það virðist fara litlu nær. Ég hygg þetta ekki rétt.
Símon Dalaskáld sagði mér frá nokkrum fremstu íþróttamönnum
Skagfirðinga á uppvaxtarárum hans og þar á meðal tveim, sem
voru svo fræknir, að þeir „steyptu klukku á sléttum velli." Þessir
menn voru Pálmi Magnússon, bóndi í Syðra-Vallholti, og Magnús
Sigurðsson frá Heiði í Gönguskörðum. Þessu til áréttingar skal því
bætt við, að Guðmundur Jónsson síðast bóndi að Hvammi í Svart-
árdal sagði mér frá þessari íþrótt Magnúsar og lýsti henni, en
þeir voru þóftubræður á Skagaströnd síðasta haustið, sem Magnús
lifði. Það skildi þar milli feigs og ófeigs, að Guðmundur meidd-
ist í hendi, svo hann hvarf heim viku áður en Magnús hélt í sinn
síðasta róður. Þeir Símon og Guðmundur lýstu þessari íþrótt ná-
kvæmlega eins. Sá, er steypa skyldi klukkunni, tók snöggt tilhlaup
stakk sér kollhnís í loftinu og kom standandi niður án þess að
snerta jörð í snúningnum. Þetta er hárrétt lýsing á heljarstökki.
Guðmundur kvaðst hafa séð Magnús leika þetta og dáði mjög þessa
frækni hans. Ég tel mér því óhætt að fullyrða, að þessi leikur hafi
verið þekktur undir þessu heiti um Skagafjörð og Húnavatnsþing
austanvert fram yfir miðja síðustu öld. Heitið heljarstökk mun
hafa borizt heim í héröðin frá Gagnfræðaskóla Akureyrar á fyrsta
eða öðrum tug þessarar aldar og hefur haldið velli síðan. En í engu
23