Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 103
GÁÐ TIL MIÐA
an, — allgreinilegt mið í björtu veðri. Þarna fékkst oft góður
færaþyrsklingur á vorin.
Norðar og vestar, þar sem Sandurinn endar að norðan, er svo
mjög glöggt mið, Kerlingarrifan, þegar Kerlinguna rifar við
Ðrangey. Norðar eru grynningar og þó sérstaklega á svokölluðum
Hól, sem er um það bil 2 sjómílur misvísandi norður (kompás-
norður) frá Gaflhorninu, norðurenda Drangeyjar, og er grunnt
á honum, 6—8 faðmar, enda bláhryggjar þar í stórbrimum.
Milli Hólsins og grynninganna kringum hann og Skerja-
grunnsins eða norður úr Sandinum liggur smááll, sem Sandáll
nefnist. Mið á honum er Skarðið opið, og er þar átt við skarðið
í Drangey.
Norður af Drangey austanverðri er rif, sem brýtur á, ef nokkur
bára er. Stutt norður af því eru sker, Kvíslarsker, þrjú sker
sem rétt koma upp úr sjó á fjöru, stundum nefnd Innri sker, til
aðgreiningar frá Ytri skerjunum, öðru nafni Hólmaskeri, sem er
hér um bil í vestur frá Kaldbak á Málmey. Hólmasker er um 20
m á hvern veg, kemur upp úr sjó um fjöru, og er djúpt að því
á alhi vegu. Miðið Kerlingin laus austan við Drangey er skipaleið
austan við Hólmasker, en miðið Fagranes vel laust vestan við
Drangey er skipaleið vestan við Hólmasker. Mikið brýtur á þess-
um skerjum og grynningum, ef ókyrrt er í sjó, og þarf einnig að
fara með gát, ef ferðast er um Skerjagrunnið. Skerjagrunnshorn
heitir mið, sem róið var á stundum frá Sauðárkrók og oft frá
Hofsós. Má geta þess, að á þetta mið munu trillur þær tvær hafa
róið, Aldan og Njörður, sem fórust á firðinum í aftaka norðan-
veðri 14. desember 1935 (og með þeim sjö menn). Mið á Skerja-
grunnshorni er Kaldhakurinn á Róðólfshnjúk. Er átt við Kaldbak
á Málmey, en Róðólfshnjúkur er í Austurfjöllunum upp af bæn-
um Róðhól í Sléttuhlíð. Austar er Sigurðarbrún. Mið á henni er
Straumnesþúfan á Reykjarhól. Þarna er ég næsta ókunnugur, en
vil þó nefna Hausana, sem voru taldir mjög fisksælt mið, en meira
sótt af Austurlendingum. Langmið á Hausunum er Húsið í Málm-
ey við Þórðarhöfða. Þvermiðin cru, að ég he!d, á Fljótafjöllum.
Hausarnir höfðu yfir sér einhverja töfra, þegar ég var í æsku, og
101