Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 38
SKAGFIRSINGABÓK
jóna Bjamadóttir frá Þúfum í Oslandshlíð, var á líkum aldri og
hann. Börn þeirra voru: Sigurlaug, Ivar, Halldór og Birna á aldr-
inum 1—-9 ára.
Þegar Sölvi og Jónína fluttust að Sviðningi, var bær þar lág-
reistur og mjög forn. Voru skálar tveir fremstir húsa og þiljur fram
á hlaðið. Mun hvor skáli naumast hafa haft meiri gólfflöt en
12 m2. Innar var baðstofa, búr og eldhús.2 Hóll nokkur var í tún-
inu kippkorn upp frá bænum. Þar stóðu peningshús, sem Anton
notaði og hafði í kindur sinar og tvö hross. Á túninu út frá bæn-
um voru peningshús, þar sem Sölvi hafði sauðkindur sínar og
hross.
Vorið 1925 var baðstofan rifin, sömuleiðis eldhúsið, og hvort
tveggja reist aftur á sama grunni. Veggir voru hlaðnir að nýju,
fengnir til nýir viðir og nýtt þak. Fjósið var reist sama vorið. Stóð
frambærinn eftir óhreyfður og svo búrið.
Vemr þessi, 1925—1926, kom snemma. Veðrátta var óvenju-
lega hörð á jólaföstu, snjóar miklir og frost með spilliblotum.
Munu hross öll á þessum slóðum hafa verið komin á fulla gjöf
snemma í desember eða fyrr. Var þá rifahjarn og færi hið bezta, en
óvenjulegt snjódýpi miðað við þann tíma vetrar. Bætti þó enn á
snjó hægt og sígandi. Mér er minnisstæður 19. desember. Þá var
sæmilegt veður og bjart. Þann dag var jörðuð á Hólum gömul kona,
Sigríður Einarsdóttir frá Saurbæ. Ég kom seint heim frá jarðaför-
inni. Er mér enn í Ijósu minni, hve hríðarbakkinn var þrunginn og
þykkur yfir hafi og inn á Skaga. Litróf hans var hið fegursta að fjöl-
breytni og mikilleik. Sást þetta glögglega úr grófinni, sem liggur
milli Hjaltadals og Kolbeinsdals. Hafði ég orð á því við föður
minn, að hér væri valið verksvið snjöllum listmálara, svo væri
litauðgi hríðarbakkans mikil og stórfengleg. Hann, sem var flest-
um gleggri á veðurfar, samsinnti mér og fullyrti jafnframt, að
skammt mundi til veðrabrigða á þann hátt, sem við vildum sízt
kjósa, því að veðurútlit benti hiklaust til þess, að blindhríð væri
í vændum.
Ymsir röktu drauma sína til harðinda, þegar hér var komið, og
2 Sjá rissteikningu af bænum.
36