Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 95
GÁÐ TIL MIÐA
Þegar róið er frá Sauðárkróki, er gerður á því greinarmunur,
hvort fara á aðeins jram eða eitthvað út me‘ö. Þegar farið er fram,
er átt við, að róið sé á svæðið innan við Innstalandssker, en þegar
farið er út með, er átt við, að sótt sé út með Reykjaströnd eða
lengra norður. — Skal nú gáð til miða á svæðinu frá Borgarsandi
út að Skarfasteinum. A þessu svæði eru mest notaðir tveir punkt-
ar sem aðalmið, hvorirtveggja sveitabæir: Borgin (Sjávarborg),
þegar miðað er út og inn, og Skarð í Gönguskörðum, þegar miða
skal þvert á fjörðinn.
Helztu miðin út og inn, talið að vestan, eru þessi: Tjörn í Borg,
Hamraheiðin, Mælifellið, Vatnsfjöllin, Vesturbrún, Nesbrún,
Austurbrún, Skarfaskímr og Geitaberg. En þvert á fjörðinn eru
þessi helzt, talið frá Borgarsandi: Albotninn eða Ulfsskálin, Kirkju-
turninn (á Sauðárkrók), Háeyrarhorn, Innstahorn, Miðhorn,
Norðastahorn, Skipagil, Silungagil, Leirdalur, Kvíar, Steinar og
Torfagil. Skal nú lítillega vikið að þessum miðum og fleira á
þessu svæði.
Tjörn í Borg var miðað þannig, að bærinn Tjörn átti að bera
í Sjávarborg eða Borgina eins og hún var ætíð kölluð af sjónum.
Nú er bærinn Tjörn, sem var kot norðan við Tjarnartjörnina,
löngu komið í eyði og allar tóftir horfnar, en um tíma minnir
mig, að þar væri torfvarða með tréstaur upp úr, sem var notuð
fyrir mið. Hún er einnig löngu horfin, enda mun nú ekki lengur
rótt á þetta gamla mið. En ég minnist þess, að eitt vor (1924 eða
’25) hafði formaður af Króknum, Þorkell Jónsson, þarna hauka-
lóð (lúðulóð), og fékk hann 9 lúður; af þeim voru 7 stórar eða
„flakandi" eins og sagt var. Hann hafði kirkjuturninn fyrir þver-
mið, og bar hann í háa melhöggið fyrir norðan Kirkjuklaufina.
Þetta þótti einnig dágott færamið, þegar skotizt var til að fá sér
í soðið, enda eingöngu notað fram af Króknum.
Borg í Hamraheiði er aðeins austar, og á Borgin að bera í Hamra-
heiðina. Þarna var smndum byrjað að leggja línu, þegar fiskur
gekk grunnt á vorin.
Litlu austar er Borg í Mœlifell, og á Sjávarborg að bera í Mæli-
fellshnjúkinn. Þetta mið nær einnig smtt norður, því Innstalands-
93