Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 71
JÓHANNES GUBMUNDSSON
og var hún veitt einróma, enda var kaupverð og greiðsluskilmálar
nær gjöf en sölu, þar sem engin verðtrygging var á láninu.
Um þessar mundir vildu ýmsir aðrir kaupa Borgarey og veltu
því nú fyrir sér, hvað jörðin mundi kosta, því Jóhannes hefði
nefnt hálfa milljón, þegar hann flutti suður fjórum árum fyrr, og
hann hlyti að átta sig á því, að síðan væri búið að fella gengið
tvisvar, og varla gæti kaupverðið orðið minna en 800 þús. En Jó-
hannes hirti ekki um gengisfellingar, þegar Lýtingsstaðahreppur átti
í hlut, og hann hafði aldrei tekið hærri vexti en 6 prósent, ef hann
lánaði eitthvað, sagði hann.
Hinn 28. desember 1968 var kaupsamningur um Borgarey
undirritaður. Jóhannes var hinn glaðasti og lék á als oddi. Hann
sagðist hafa þekkt bændur í Lýtingsstaðahreppi um áratugi og þeir
væru vinir sínir, og svo ræddi hann mikið um framtíðarskipulag
og nýtingu Borgareyjar. Hann benti á, að framlag hvers bónda til
heyskaparins ætti að vera í hlutfalli við búpeningseign, alveg eins
og notkun Eyvindarstaðaheiðar, sem hann sagði að væri það mesta
dýrmæti, sem bændur ættu. Eg taldi hins vegar, að þetta form
mundi ekki henta, heldur yrði hreppsnefndin að sjá um rekstur og
afnot á hverjum tíma, svo að sem mestu gagni kæmi. Jóhannes
var mjög hrifinn af félagsræktun á Suðurlandi og vitnaði mjög í
hana. Hann sagði, að við þyrftum að kaupa bindingsvél, sem bindi
100 hesta á klukkutíma, og svo yrðum við að byggja 2000 hesta
hlöðu, því lágmark væri að eiga eitt til tvö þúsund hesta til að
úthluta á hörðum vetri.
Það er staðreynd, að bæði árin 1969 og 1970 forðaði heyskap-
ur í Borgarey miklum niðurskurði í Lýtingsstaðahreppi, en hins
vegar gerði ég mér það ljóst, að í samfelldu góðæri væri þörfin
minni, en þá væri vandinn ekki annar en sá, að kosta litlu til og
lofa grasinu að vaxa ósánu, þessu grasi sem Jóhannes í Vallholti
elskaði svo mjög.
Ekki veit ég, hvort Jóhannes hefur hugsað mikið um andleg
mál eða sótt kirkju á manndómsskeiði, en þó svo hafi ekki verið,
er það ekkert einsdæmi. En hvað sem um það er, þá er víst, að
69