Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 88
SKAGFIRÐINGABÓK
Þegar þeir félagar eru komnir á Innri-Eggjabrekku á vetrar-
veginum eins og fyrr er sagt, verður það, að Marteinn sleppur úr
tábandinu á öðru skíðinu, en mátti þó heita að á jafnsléttu væri,
en skíðið skauzt svo snöggt af fætinum, að það var á augabragði
komið á flugaferð niður Eggjabrekku og hvarf fram af brekkubrún-
inni niður í Tjarnadalinn. Sagði Marteinn þá samferðamönnum
sínum, að þeir skyldu ekki bíða sín, því hann færi niður fyrir
brekkuna og tæki skíðið og kæmi svo inn Almenninga. Skildi þar
með þeim. Marteinn fór niður Eggjabrekkuna og fram af brúninni,
en hinir inn vetrarveg og beina leið heim til sín. Hvergi komu þeir
við á bæjum á heimleiðinni til að grennslast eftir félaga sínum, þó
að þeir sæju aldrei til hans á undan sér eða eftir. Mátti slíkt sinnu-
leysi furðanlegt kalla. — Það er ekki fyrr en daginn eftir, að sam-
ferðamenn Marteins komu heim, að kona hans fréttir af tilviljun,
að samferðamenn hans voru heim komnir. Fór hún þá á fund eins
þeirra og spyr eftir, hvað Martein tefji. Varð maðurinn þá allhissa á,
að hann skyldi ekki vera kominn heim og segir með hvaða hætti
þeir höfðu skilið. Var þegar brugðið við, safnað mönnum og leit
hafin. Þegar leitarmenn komu á staðinn, þar sem skíðið fór fram
af brekkunni, sáu þeir brátt hvernig farið hafði. Var snjóhengjan
fallin fram á löngu svæði, hafði hún auðsæilega sprungið fram
með manninn, enda fannst hann þar örendur undir fanndyngjunni.
Þau Marteinn og Sigurbjörg áttu einn dreng kornungan.
Þjóðvegurinn frá Skagafirði til Sigiufjarðar liggur sem kunnugt
er um Haganesvík í Vestur-Fljótum, þá fram Grindilsströnd yfir í
Austur-Fljót fyrir framan Miklavatn, yfir Ketilás, út þaðan í átt
til Siglufjarðar. Þannig lá vegurinn um Austur-Fljót einnig á síð-
astliðinni öld, nema hvað ekki var farið á brú yfir Fljótaá, heldur
á vaði, sem var nokkru framar en brúin er nú. Leiðin frá Haganes-
vík fram fyrir vatn og út að Hraunum mun vera um 12 km. Þetta
var því enginn smáræðis krókur fyrir ferðamenn, sem heima áttu
fyrir innan fjall, sem kallað var, en til þeirra töldust rnenn úr
Sléttuhlíð og Skagafirði. Einnig var sama að segja um þá, rem
heima áttu neðarlega í Vestur-Fljótum. En til var önnur leið, sem
86