Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 162
SKAGFIRÐINGABÓK
vinna hann og trumba. Að trumba kölluðu hákarlamenn, þegar
gert var gat í gegnum hákarlstrjónuna og þar í gegn dregin
keðja, sem síðan var hengd utan á borðstokka skipsins og yfir
það miðskips, þannig að hún skapaði nokkurt samhald, svo að
minna reyndi á skipið af þyngslunum.
Það var venja, þegar hákarlsafli var mikill og veður þannig
að hægt var að liggja áfram, að merki var gefið með því að reisa
mastrið. Yar það gert tii þess að gefa til kynna í landi, að afli
væri mikill og þess óskað, að bátur kæmi úr landi til að flytja
hákarl í land. Þetta var gert nú, og komu þeir fram á báti úr
Kelduvíkinni, afi minn, Svef.'m Jónatansson, sem þá var nokkuð
aldurhniginn, og Jón Sveinsson á Þangskála, faðir Sveins og Pét-
urs, sem áður er getið.
Var nú gengið að því að skera hákarl í bátinn, og fóru þeir
Sveinn og Jón að því búnu í land. Var gert ráð fyrir, að þeir
kæmu um hæl aftur að sækja meira.
Var nú liðið fast að hádegi á miðvikudag, og var hákarlinn
ennþá óður. Stórstreymt var um þessar mundir og straumur því
þungur í flóðið, eins og jafnan er á þessum slóðum. Bað nú faðir
minn Svein á Þangskála að fara fram á og athuga, hvort mjög
strengt væri á stjórafærinu, en straumurinn lagðist mjög í há-
karlsseilarnar, sem voru utan á skipinu. Sagði Sveinn, að stjóra-
færið hefði þá verið svo strengt, að rungið hefði í því, er hann
snerti það. Skömmu síðar slitnaði það og kom um leið slynkur á
skipið. Hreif nú straumurinn það samstundis með sér, en stefna
hans var í fyrstu austur og inn í fjörðinn. Var nú sezt undir árar
og reynt að hamla gegn því, að þá bæri mjög til djúps. Gekk svo
lengi dags, að sama og ekkert vannst á, enda varla von á aðeins
fjórar árar og með svo mikið utanborðs. Bárust þeir fyrir straumn-
um, þar til komið var á móts við Þursasker, sem er fram af Kleif.
Með útfallinu breyttist stefna straumsins og fór að bera grynnra
og síðan norðvestur og grunnt, en fallaskipti eru úti fyrir Skaga.
Þegar hér var komið hafði sézt til ferða Sæfara inn fjörðinn
frá Mallandi og Ketu. Kom Magnús í Ketu út á báti þeim til
aðstoðar og með honum Jón Þorfinnsson á Mallandi og Gísli
160