Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 56
SKAGFIRÐINGABÓK
síðar var jörðin seld til afréttar með Tinnárseli og Nýjabæ fyrir 20
þúsund kr. Síðustu ábúendur á staðnum „milli á” voru Gunnar
Gíslason og Sigríður Guðmundsdóttir. Þau fluttust að Abæ 1929,
áttu margt barna, svo að þar eru 9 á manntali í árslok 1940, en
vorið eftir fara þau búnaði sínum að Víðivöllum. Nytjaði Gunnar
jörðina að nokkru þaðan og frá Bústöðum frá 1944, er fjölskyld-
an fluttist þangað. Hr Gunnar þá af nýju skráður að Abæ með 4
börnum sínum, þau aðeins árið eftir og bræðurþrír 1946, en næstu
þrjú árin Ásgeir og Jón Gunnarssynir. Teljast þeir síðast þar til
heimilis 1949, en eftir það getur Ábæjar ekki í sálnaregistri.-4
Þannig hafa býlin í Austurdal horfið hvert af öðru úr tölu byggðra
bóla. Mikið landrými og góðir kostir að mati og reynslu hins gamla
búskaparlags standast ekki straumþunga nýrra þjóðhátta.
Enn er þó búið, og búið vel, á Merkigili og Skatastöðum. Moníka
Helgadóttir hefur nú búið á Merkigili nær hálfa öld (frá 1923),
ekkja síðan 1944. Saga hennar, „Konan í dalnum og dæturnar
sjö", kom út 1954. Dóttir Moníku, Margrét, og dótturdóttir,
Moníka Baldursdóttir, eru með henni að búi. Samgöngu- og flutn-
ingsleiðin að Merkigili liggur nú ekki lengur um gilið mikla, '■r
svo frægt er orðið, því að Jökulsá var brúuð undan Skuggabjörg-
um 1961. Opnaðist þá og leiðin að Abæ, og er nú að kalla akfært
þangað heimundir, en göngubrú á Ábæjará var sett skömmu eftir
að staðurinn fór að fullu í auðn. — Kláfnum á Skatastöðum er ekki
haldið við lengur. Er að því bagi heimafólki og eins, ef farin er
gönguleið um fjall úr Vesturdal að Ábæ, þar sem Goðdalaprestar
komu að kirkjunni um aldir, — og dr. Pétur biskup vildi láta
bændur vinna að vegagerð, ef presturinn ætti að koma án sérstak-
rar þóknunar til að messa. Á Skatastöðum eru 8 heimilisfastir, þau
Björn og Ingibjörg, sem fyrr getur, Kristján Guðjónsson bóndi,
Sólborg kona hans Bjarnadóttir og fjögur börn þeirra, sem enn
eru í foreldrahúsum, elztur þeirra er Guðjón, sem einnig er bú-
andi á jörðinni. Þar með er Ábæjariöfnuður upp talinn.25 Sóknar-
nefnd skipa Moníka Helgadóttir, Kristján Guðjónsson og fram að
þessu einnig Björn Þorsteinsson, og er Mom'ka formaður. Hyggur
sóknarnefndin vel að kirkjunni, enda er viðhald hennar gott, þótt
54