Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 76
SKAGFIRÐIN GABOK
Björn Jónsson á Skarðsá, f. 1574, segir svo frá í annál sínum, að
Helga hafi með fleiri lconum flúið fram til fjalla og haldið sig þar
um stund, og jafnframt er þess getið, að Dönum hafi þótt sem silf-
urgripum Hólastaðar hafi fækkað nokkuð um það leyti, og er þar
að sjálfsögðu sveigt að Helgu. Felustaðarins er ekki getið, enda er
helzt svo að skilja, að Björn hafi farið þarna eftir dan-kri samtíma-
heimild í frásögn sinni, og hún þá sennilega byggð á skýrslu hinna
dönsku manna, sem þeir hafa gefið við heimkomu sína til Hafnar,
og mundi það þá vera elzta ritaða heimiidin um fjarvist Helgu frá
Hólum og vitanlega var þeim ókunnugt um dvalarstað Helgu, og
því getur Björn hans ekki. En Fitjaannáll, sem er nokkrum ára-
tugum yngri og á þessum kafla lítið annað en uppskrift úr Skarðs-
árannál, bætir þó því við, að Helga hafi, ásamt Guðrúnu sonar-
dóttur sinni, falið sig í fjallinu Glóðafeyki. Hefur höfundurinn
ekki viljað, að þessa væri ógetið.
Espólín getur að sjálfsögðu þessa atburðar í Árbókunum, en þær
eru að vísu engin frumheimild. Segir þar, að Helga hafi ásamt
flestum konum á Hólum og Guðrúnu Magnúsdóttur, sonardótmr
sinni, flúið þaðan, þegar spurðist til hinna dönsku herskipa, og
leynzt í fjalli nærri Okrum, er Glóðafeykir heitir, á meðan herra-
mennirnir voru hér við land um sumarið. Höfðu þær mosalitað
tjald, og var fært þangað það, sem þær þurftu. Höfðu þær tekið
með sér það fémætt í silfri, er flytja mátti. — Þannig hefur sagan
verið sögð í Skagafirði undir lok 18. aldarinnar.
Það, sem hér að framan hefur verið höggvið niður á, sýnir, að
sögnin um dvöl Helgu Sigurðardóttur í Glóðafeyki hefur verið
kunn hér á landi allt frá því, að sá atburður átti sér stað, eða því
sem nær. Og hún er skrásett af mönnum, sem vel máttu vita hið
rétta og mark er á takandi. Eg veit því ekki, hvenær eða hvernig
þetta hefði átt að geta orðið að hreinni, rakalausri þjóðsögu.
En nú skal vikið að öðrum samtíma ritum, sem þó ekki nefna
þennan atburð berum orðum, en ætla má samt, að komi inn á hans
svið allverulega, staðfesti og upplýsi vissar hliðar málsins.
Hinir dönsku erindrekar konungs voru staddir á Hólum í Hjalta-
74