Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 62
SKAGFIRBINGABÓK
fyrir ræktun, byggingar og kynbætur búfjár. Hann fór í Möðru-
vallaskóla og lauk námi þar laust fyrir aldamótin með 1. eink-
unn, enda námsmaður góður og vel gefinn. Vegna umbóta skuld-
aði Valdimar nokkuð um skeið. Eftir honum var höfð þessi setning:
„Ef eitthvað á að gera, verður maður að taka lán, af því lífið er
smtt".
Þeir Eiríkur og Jóhannes fóru ekki í skóla, en Eiríkur átti gott
bókasafn og kunni skil á mörgu. Það sagði mér Sigríður Benedikts-
dóttir, föðursystir mín, að Eiríkur hefði kunnað langbezt af ferm-
ingarbörnunum, en hún var fermingarsystir hans. Hann var flug-
mælskur og tók mikinn þátt í umræðum á mannfundum. Gömlu
fólki er minnisstæð framganga hans á málfundum á Sauðárkróki í
sýslufundarviku. A þessum fundum voru rædd framfaramál í sýsl-
unni, og mælskumenn í héraðinu leiddu þar saman hesta sína, en
kannski hafa þeir ekki alltaf meint nákvæmlega það, sem þeir
sögðu, því mælskulistin var notuð til að skemmta fundarmönnum.
Eiríkur var umbótasinnaður í búskap, til dæmis byggði hann stein-
steypta heyhlöðu, eina af þeim fyrstu í sýslunni. Þá stundaði hann
kynbætur sauðfjár, og það kom honum að gagni, því hann fóðraði
vel. Sumar tillögur Eiríks voru á undan samtíðinni. Hann vildi
að ríkið kostaði alla vegi í staðinn fyrir að deila kostnaði á sýslur
og hreppa.
Einhverju sinni var flutt framsöguerindi á málfundi á Sauðár-
króki um kynbætur sauðfjár. Eiríkur í Vallholti hafði þá keypt
kynbótahrúta úr Þingeyjarsýslu, en sauðfjárrækt Þingeyinga stóð
þá með miklum blóma. Hann hélt fram gagnsemi kynbóta og lýsti
kostum þingeyska fjárins. Séra Arnór í Hvammi var á annarri
skoðun. Hann sagði, að þingeyska féð væri feitlagið og lingert, lág-
fætt og kviðsítt og ekki hægt að koma því af f jalli, ef snjó drægi
í laut. Betra væri, að sauðfé væri kviðminna og háfættara og hefði
hörku til að krafsa snjó. Eiríkur mótmælti þessari ræðu kröftug-
lega, og þegar séra Arnór greip fram í, kallaði hann snöggt: „Þegi
þú, prestur, þú færð að tala á eftir". Þannig var Eiríkur í Vallholti,
eftirminnilegur samtíðarmönnum sínum fyrir gáfur og mælsku
auk annars.
60