Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 155
SENDIBRÉF FRÁ NÍTJANDU ÖLD
predikar. Að lokinni embættisgjörð, hélt sr. Sveinbjörn Hall-
grímsson dálitla ræðu (hana legg ég hér innan í), það er sá sami,
sem gefur út Þjóðólf. Allir þögðu sem fiskur og fóru þegjandi
út. Um kvöldið fóru nokkrir af kaupmannsstandinu til prestsins til
að gjöra afsökun sína, að þeir hefðu ekki átt neinn þátt í því, sem
fram fór í kirkjunni, kölluðu það svívirðing eða hneyksli. Skömmu
eftir þetta komu nokkrir sóknarmenn saman til að tala um, hvört
nú mundi ekki kominn tími til að skrifa presti til eða hvört menn
ættu heldur að skrifa biskupi. Var það ráðið af, að presti skyldi
skrifað og þeir af sóknarmönnum skrifa undir, sem þessu væru
samdóma. Átti nú að kalla saman fund til að tala um og skrifa
undir bréfið. Þegar land og bæjarfógeti frétti þetta, heimti hann
nokkra menn á tal við sig og réði þeim fastlega frá þessu, sem
hann kallaði heimsku eða ég veit ekki hvað. Samt héldu menn
áfram að halda fundinn, og varð fógetinn stjórnari fundarins
eftir bón fundarmanna. A fundinum hélt hann kröftuglega í
hönd með presti, en kom aungu til leiðar; en fyrir bón hans hættu
menn við að senda presti bréfið að sinni með því skilyrði, að
fógeti lofaði sinni meðalgöngu, og gjörðu menn sig ánægða með,
ef biskup og prestur lofuðu því, að einhvör sem til heyrðist predik-
aði 4. hvörn helgan dag. Atti nú þetta að kunngjörast á fundi
að 2 dögum liðnum; nú kom þessi dagur, og varð fundur fjöl-
mennur. Las nú fógeti upp bréf frá biskupi, og þótti öllum það
geðfelt og annað frá presti og þótti minna í það varið. Héldu
menn nú áfram að biðja um ... A að predikað yrði hvörn 4da af
einhvörjum, sem til heyrðist; en voru valdir 6 menn, sem taka
áttu á móti þessu loforði að degi liðn/um/...' Gjörði nú prest-
ur þeim boð og vildi tala við þá; kvaðst hann ekki geta tekið
capellan og ekki útvegað predikara, en sagðist vera búinn að gefa
biskupi á vald að ráða úr þessu eins og hönum þætti bezt haga.
Þeir fóru til biskups og reyndist þá, að herra presturinn hafði eng-
an myndugleik gefið hönum nema þann, sem biskup áður hafði,
að hann mætti fara í stólinn, þegar hann vildi. Um þessar mundir
1 Bréfið skaddað; hugsanlega á hér að standa: loforð.
2 Skemmd í bréfinu.
153