Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 101
GÁÐ TIL Mia^
og bar stundum ekki af línunni, sem þó var ekki löng, ca. 25
stokkar (1 stokkur 120—-140 önglar). Minnist ég þess eitt sinn,
að skildir voru eftir 4 stokkar, þegar báturinn bar ekki meir.
Þegar við drógum þá daginn eftir, var rúmt skippund á þá (ca.
hálft tonn), og hafði þó mikið snúið sig af. Fiskur þessi var á
litlu svæði út og fram úr Glerhallavíkinni. Þegar svo bátar fóru
að koma víðar að, frá Hofsós og jafnvel Siglufirði, varð úr línu-
þvarg mikið, og þurfti þá oftsinnis að grípa til sýslumannsins
(hnífsins). Þetta var mjög fallegur fiskur, fremur smár hrygningar-
þorskur, gulur á bakið, en vel hvítur á kvið, fullur af hrognum og
sviðum.
Leir kölluðu gamlir menn svæðið út og fram af Skorum, og
heyrði ég þá segja á Drangeyjarfjöru, „að nú ryki á Leirnum",
þegar hann tók sköfur undir Stólnum í vestanátt.
Við Reykjadisk er talið, að tveim þriðju leiðarinnar frá Sauð-
árkrók til Drangeyjar sé lokið, og var þá á árabátaöldinni lagt á
hann „langan og seinan" fram að eyjunni. Væri bjart, var fylgzt
vel með, hvað miðaði, og er talið hálfnað frá Reykjadisk, þegar
Leirhnjúkurinn kemur undan Stólnum. Leirhnjúkur er ávalur
hnjúkur suður af Bjarnarfellinu. En þegar Bjarnarfellsnýpan kem-
ur undan Stólnum, er hálfnuð leiðin til Drangeyjar úr Sundum.
Væri þoka og stillilogn, var haldið upp árum og hlustað, því talið
er, að í slíku veðri heyrist fuglakliðurinn frá Drangey allt að
hálfa leið til lands. Var þá gott að átta sig á hljóðinu, því lítið
var um áttavita.
Þá erum við komin að veiðisvæði, sem nefnist Sandur og liggur
vestan við Drangey. Þangað var mikið sótt á litlum vélbátum frá
Sauðárkrók og reyndar einnig frá Hofsós. A Sandinum eru höfð
fyrir langmið Vesturfjöllin, Gilsbungan, Staðaröxlin, Vatnsfjöll-
in og Mælifellið (Mælifellshnjúkur); á þessi fjöll að bera við
Tindastól að austan, og er kallað að vera um Gilsbunguna, að
vera um Staðaröxlina o.s.frv. Mœlifell á grös er kallað, þegar
Mælifellshnjúkurinn gengur á Reykjaströndina, en sagt er aftur
um Mrelifellið, þegar hann ber við Stólinn.
A Sandinum er jafndýpi og góður botn, eins og nafnið bendir
99