Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 79
FELUSTABUR FRUARINNAR
upsfrúarinnar á Hólum, að eignamissi áttu yfir höfði sér? Jú, það
vill svo til, að glögg deili eru þekkt á þeim. Þeir voru báðir vel
kunnir á sínum tíma. Og nöfn þeirra eru geymd í Alþingisbókum
Islands. Þeir urðu sem sé síðar lögréttumenn í Skagafirði eða voru
jafnvel þegar orðnir það, er þetta var, og því í röð fremstu leik-
manna héraðsins. Þeir sóttu alþingi í mörg ár (sbr. Lögréttumanna-
tal Einars Bjarnasonar). Þeir voru báðir vel ættaðir. Jón var sonur
Gríms Jónssonar á Stóru-Okrum, sem var lögmaður norðanlands og
vestan í nokkur ár. En kona Jóns var Þóra Tómasdóttir, og var hún
dótmrdóttir Helgu biskupsfrúar. Hafði Helga eignazt móður
Þóru, áður en hún varð fylgikona Jóns biskups. Þau Jón og Þóra
bjuggu á Okrum. — Gottskálk er talinn hafa verið sonur Tóm-
asar Brandssonar bónda á Þorleifsstöðum. En kona Tómasar og
móðir Gottskálks var Guðrún, dóttir nýnefnds Gríms lögmanns. En
systir Gottskálks, Guðrún Tómasdóttir, var gift Olafi Tómassyni,
skáldi og lögréttumanni á Hafgrímsstöðum, en hann var albróðir
Þóru konu Jóns á Okrum og því dóttursonur frú Helgu. Gottskálk
bjó á Sólheimum. Þeir hafa því báðir, Jón og Gottskálk, verið í
nánum ættartengslum og venzlum við Helgu. Fer þá málið að
skýrast nokkuð. Er enginn efi á, að hún hefur á einhvern hátt verið
í umsjá þeirra um sumarið og undir þeirra hlífiskildi. Og þeir voru
þannig í sveit settir, að vel mátm þeir hafa fylgzt með henni í út-
legðinni, hafi hún á annað borð leynzt við Glóðafeyki, sem ég tel
ástæðulaust að efast um. Stóru-Akrar eru aðeins röska bæjarleið
frá fjallinu og Sólheimar litlu fjær til þess að gera. Frá þessum
bæjum var stutt að flytja til hennar matföng og annað það, sem
hana vanhagaði um hverju sinni. Þeim hefur líklega þótt tryggara
að fela Helgu á vald fjallanna, meðan öldurnar út af aftöku þeirra
feðga og eftirmálum þess atburðar risu sem hæst, en að gæta henn-
ar á heimilum sínum, sem voru mjög í þjóðbraut, enda hefði það
þá væntanlega verið orðað á annan veg.
Þess má geta, að líkur viðburður þessum hafði orðið tveimur eða
þremur árum fyrr, ekki langt þarna frá. En það var þá, er alvarlega
hafði skorizt í odda á milli Jóns biskups og séra Ólafs Hjaltason-
ar, þá prests í Laufási, er síðar varð eftirmaður hans á Hólum. Var
77