Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 87
ÞRJÁR SLYSFARIR í FLJOTUM
að ekki koma þeir Brúnastaðamenn. Loks er Hermanni farið svo
að leiðast, að hann hleypur frá sjónum suður á svokallaða Hvíld-
arsteinabrekku til að athuga, hvort hann sæi ekkert eða heyrði til
þeirra. Var þá nær miðri nóttu. Er Hermann kemur suður á hól-
ana, heyrir hann neyðarkall frammi á vatninu. Hljóp hann þá sem
mest hann mátti suður hjá svokölluðum Giljateigum. Hangir
Friðrik þar á sleðanum í vök. Hafði ísinn brotnað og varð Níels
undir sleðanum og drukknaði, en Friðrik missti ekki tak á sleðan-
um, gat þó ekki komizt upp á ísinn. En úr hákarlaróðri varð ekki
í það sinn.
Árið 1912 bjó á Sjölindastöðum í Flókadal Marteinn Aðalsteins-
son. Var hann albróðir Guðlaugs þess, er drukknaði í Flókadals-
vatni 1908. Kona Marteins hét Sigurbjörg Guðnadóttir, Jónssonar
bónda á Heiði í Sléttuhlíð og konu hans, Sigurlaugar Steinsdóttur.
Marteinn og Sigurbjörg giftust haustið 1910.
Nú var það, að hinn 4. febrúar árið 1912 gerir Marteinn heiman
för sína til Siglufjarðar og með honum 3—4 aðrir bændur þar úr
dalnum. Þeim félögum gekk ferðin vel til Siglufjarðar og voru þar
einn dag um kyrrt. Hinn 6. febrúar lögðu þeir af stað heimleiðis.
Veður var gott og skíðafæri hið bezta, en þó stokkfenni sums
staðar. Héldu þeir félagar nú sem leið liggur upp á Siglufjarðar-
skarð. Þar bundu samferðamenn Marteins skíðin við sig eins og
siður var að gera, ef vegfarandinn þóttist ekki öruggur að standa
niður brekkurnar. En þó voru margir svo öruggir skíðamenn í
Fljótum, sem aldrei bundu á sig skíðin á þessari leið, og einn af
þeim var Marteinn. Allt gekk vel þar til komið var inn á svokall-
aða Innri-Eggjabrekku. Er hún allbrött, og setur þar jafnan snjó-
hengju í norðaustanátt, þegar kemur niður fyrir vetrarleið, því að
þar verður brekkan mikið brattari. Eggjabrekkan endar í brattri
brún eða þverbrekku, sem liggur frá suðri til norðurs, og heitir hún
Katrínarbrekka. Neðan undir henni eru svokallaðir Tjarnadalir.
Sumarvegurinn ril Siglufjarðar úr Fljótum liggur efst í Tjarnadal,
en neðst í Katrínarbrekku, lá áður uppi á brekkubrúninni. Sjálf
liggur Eggjabrekkan þvers á þessa brekku, frá austri til vesturs.
85