Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 70
SKAGFIRÐINGABÓK
A leiðinni heim kom hann að fjárhúsum í Syðra-Vallholti og hitti
þar roskinn mann, Gunnar Gunnarsson. „Þú hefðir ekki farið þessa
leið í verstu hríðunum frostaveturinn 1881," sagði Gunnar, en
hann kunni vel að segja frá frostavetrinum mikla, því hann var
fæddur 1852. Og til að skýra staðhæfingu sína sagði Gunnar eftir-
farandi sögu: Frostaveturinn 1881 voru engin hross úti í Hólm-
inum nema ein hryssa í Borgarey. Hún var utan af Skaga og var
þarna í hagagöngu. Eitthvað hafði henni verið gefið, og einhverjar
snapir hafði hún, ef hríðarlaust var. En svo kom norðan stórhríð
með því frosti, sem þá var, og stóð í marga daga. (Gæti hafa verið
góubylurinn, sem Kristleifur á Kroppi segir frá). Þegar upp birti,
rást hryssan uppi standandi fram undir Skiphól, en hún var frosin
í gegn.
Þá kem ég að því, sem mér og öðrum íbúum Lýtingsstaðahrepps
ber að flytja Jóhannesi Guðmundssyni hugheilar þakkir fyrir. Það
er, þegar hann seldi Lýtingsstaðahreppi Borgarey.
Hinn 6. apríl 1968 var ég hjá Jóhannesi og spurði, hvort hann
vildi selja Borgarey, en Lýtingsstaðahreppur átti kauparéttinn vegna
þess, að jörðin var býli úr landi Brenniborgar. Hann neitaði því, og
leið svo sumarið. Um haustið fékk ég boð frá Jóhannesi að hitta
sig, þegar ég yrði á ferðinni. 13. og 14. nóvember var ég í Hvera-
gerði. Þá hafði Jóhannes hugsað ráð sitt og gaf nú hreppnum kost á
jörðinni með vissum skilmálum og skilyrðum. Vafalaust þótti Jó-
hannesi vænt um Borgarey, og hann var þá búinn að ráðstafa öðr-
um eignum sínum fyrir norðan. Reimar á Löngumýri sagði, að
hann hefði ekki grætt eins mikið á neinu og Borgarey.
Hinn 14. nóvember hef ég skrifað í dagbók mína. „Kaupverð er
500 þús. kr. Kr. 100 þús. greiðist við undirritun samnings, en kr.
400 þús. greiðist með jöfnum afborgunum á 20 árum, ásamt vöxt-
um 6 af hundraði. Skilyrði frá Jóhannesi eru þau, að þetta land
verði sameign og óaðskiljanlegur hluti allra jarða í hreppnum eins
og afréttarlönd og notist sameiginlega til að tryggja fóðurforða,
með heyforðabúri eða framleiðslu heyköggla". Með þetta fór ég
heim, því ég varð að fá heimild hreppsnefndar til að gera kaupin,
68