Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 65
JOHANNES GUBMUNDSSON
„Hún var Ijós á mínum vegum og lampi fóta minna". Jóhannesi
fórst líka vel við móður sína. Hún lá rúmföst heima í Vallholti síð-
ustu átta árin, sem hún lifði, og Jóhannes réð konu til að annast um
hana og hjúkra henni, eftir því sem unnt var. Guðrún í Vallholti
andaðist árið 1936, 88 ára gömul.
Þau Jóhannes og Sigríður eignuðust tvær dætur, Guðrúnu og
Valgerði, sem nú eru búsettar og giftar í Hveragerði.
Jóhannes Guðmundsson var meðalmaður á vöxt, kvikur á fæti
og hljóp oft við fót, fljótur að hugsa og fljótur að tala. Honum
lá oft mikið á, nema þegar hann sat hjá gestum sínum. Þá var
enginn asi á honum og hann ræddi um heima og geima. Hann var
með glampa í augum, sem bar vitni um kapp og sterkan vilja.
Jóhannes var örlyndur í meira lagi. Skaplyndi hans var eins og
vestanáttin. Ofsastorm gerði, sem datt svo niður í dúnalogn. Hann
átti bæði hörku og auðmýkt, og þegar hann var auðmjúkur, talaði
hann hægt og lækkaði róminn. Kapp og forsjá var honum í blóð
borið. Hann elskaði hið gróandi gras, undirstöðu búskaparins, og
bar sterkan metnað fyrir hönd bændastéttarinnar. En þó að Jóhann-
es væri einstaklings- og féhyggjumaður nokkur, bar hann í brjósti
hugsjónir félagshyggju og jafnaðarstefnu. Hann var hrifinn af
ýmsum félagssamtökum, sem unnu að því að bæta hag almenn-
ings. Oft gerði hann því skóna, að Hólmurinn ætti að vera
heyskaparland fyrir fjölmörg býli í grennd, og heyjanna skyldi
aflað með samvinnu og félagsskap, eftir því sem hagkvæmt væri.
Væntþótti Jóhannesi um héraðið og sögu þess, og ekki hefði hann
horfið úr héraði í hárri elli, ef svo hefði ekki staðið á, að Guðrún
dóttir hans var þá búsett og gift í Hveragerði. I Hveragerði leið
honum vel og eignaðist þar góða vini og kunningja, en náttúru-
fegurðar gat hann ekki notið þar. Hann sá ekki sólina rísa úr ægi.
Eg var ungur að árum, þegar ég man fyrst eftir Jóhannesi í
Vallholti í haustréttum. Hann var kvikur á fæti og stjórnaði
röggsamlega því, sem hann átti yfir að sjá og harður í horn að
taka, ef í odda skarst. Og margs þurfti stórbúið með, og Jóhann-
es var alls staðar nálægur, fylgdist með öllu, og á fyrri árum vann
63