Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 126
SKAGFIRBINGABÓK
Vallabónda, sem Þorsteinn hét. Sögu þá, er hér fer á eftir, hefur
heimildarmaður þessarar lýsingar heyrt um uppruna nafnsins:
Þorsteinn hét maður, er bjó á Völlum einhvern tíma á 18. öld.
Talinn var hann dugnaðarmaður, nokkuð harður í horn að taka,
ef því var að skipta, og slyngur skotmaður.
Þá er það einhvern sunnudag, að Þorsteinn tekur orf sitt eftir
venju og fer að hjakka í mónum, en þar var slægja góð. Byssu
sína hafði hann með sér og lagði hana skammt frá, því að um
nóttina áður hafði hann dreymt illa og vildi vera við öllu búinn.
— Þann dag, þegar hann hefur slegið drykklanga stund, verður
honum litið til vesturs og sér svarta flyksu á fleygiferð vestan
Hólminn. Þorsteini bregður nokkuð við þetta, þrífur byssu sína og
hleður í snatri. Er þá flyksan komin allnærri Þorsteini og stefnir
hún beint á hann. Þykist hann þá vita, að þetta sé sending frá
galdramanni á Hornströndum, en sá náungi hafði eitthvað óving-
azt við Þorstein árið áður og haft í heitingum við hann. Hefur nú
Þorsteinn hraðan á, slítur silfurhnapp úr peysu sinni, rennir í
byssuhlaupið og hleypir þegar af á ófreskju þessa, er þá var í
þann veginn að hremma Þorstein. A svipstundu breyttist gestur
þessi í snarkandi eldglæringar, og svo hvarf allt í sömu svipan.
En þar sem ófögnuður þessi hvarf, fann Þorsteinn herðablað af
manni, og var gat á því eftir silfurhnappinn. Hafði Þorsteinn
herðablaðið heim með sér til sannindamerkis og þóttist úr helju
sloppið hafa.
Geirhildur í Jökulsárgili
Sunnan við surtarbrandsklettana í Jökulsárgili í Hofslandi í
Vesturdal, að austanverðu við ána uppi í hamrabrúninni, heitir
Geirhildarstígur. Þar er hægt að komast niður í dalinn eftir kletta-
gjá. A hamarsbrúninni að vestanverðu við gilið, andspænis Geir-
hildarstíg, var steinstrýta allhá, sem hét Geirhildur. Efri hluti
drangans var rauðleitur, og líktist steinstrýtan, séð í nokkurri fjar-
lægð, geysimiklum kvenmanni í rauðri treyju eða peysu.
Sú sögn er sögð um Geirhildi, að hún sé tröllskessa, sem hafi
124