Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 161
MINNISSTÆÐUR HÁKARLSRÓÐUR
tíð voru: Ásmundur Árnason í Ásbúðum, bræðurnir Sveinn og
Pétur Jónssynir á Þangskála, Sveinn M. Sveinsson í Kelduvík,
bróðir Steins, Jón Þorfinnsson á Ytra-Mallandi og Magnús Árna-
son í Ketu, bróðir Ásmundar.
Framan af vertíðinni var hákarlsafli fremur tregur, en þó fékkst
eitthvað í sumum róðrunum.
Svo var það þriðjudaginn síðastan í vetri, þann 17. apríl, að
farið var í róður. Til skips komu, auk föður míns, Ásmundur í
Ásbúðum og Sveinn og Pétur á Þangskála. Hinir hásetarnir voru
eitthvað vant við látnir og komu ekki. Þó þeir væru þannig ekki
nema fjórir, var ákveðið að róa, enda veður allgott, norðan kaldi
og þokuloft en sjólítið. Róið var um morguninn úr Kelduvík og
haldið á mið það, er Háfur nefnist, sem er í brúninni austur frá
Kelduvík. Þarna var lagzt við stjóra, eins og venja var í hákarla-
iegum. Setmst þeir faðir minn og Pémr undir vað, en þeir voru
báðir vanir vaðamenn.
Veður hélzt svipað um daginn og fram eftir nótmnni. Var
afli fremur tregur, en þó voru þeir að slíta upp eitt og eitt got,
en svo nefndu hákarlamenn smærri hákarla.
Þegar líða tók á miðvikudagsnóttina, lygndi norðankaldann og
létti í lofti, og undir morguninn var komið bjart og fagurt veður.
Með afmreldingunni tók afli mjög að glæðast, og eftir skamma
hríð var hákarlinn orðinn óður sem kallað var. Oð hann í torfum
ofan sjávar allt umhverfis skipið. Var nú hákarlinn tekinn ofan-
sjávar, þannig að borið var í hann og síðan dreginn að borði og
drepinn.
Að bera í hákarl er vandasamt verk, ef vel á að takast. Verður
helzt að bera ífæruna í auga eða undir skaflinn, en tennur há-
karlsins nefnast skafl. Aldrei má bera tvær ífærur í sama hákarl-
inn lifandi. Gemr hann þá snúið ífæruböndin saman og valdið
slysum, en hákarlinn er geysi sterkur. Ifæra er einskonar krókur
úr járni með sigurnagla í endanum, sem í er fest band, sem haldið
er í og látið leika í sigurnaglanum, þegar hákarlinn snýr sér með-
an verið er að vinna hann.
Nú barst svo mikið að af hákarli, að á höndum einum stóð að
159
L