Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 100
SKAGFIRÐINGABÓK
víkinni í fjósið á Daðastöðum. Nýrra mið hefur mér verið sagt
að væri Húsið á Fagranesi undan yztu klettum fram af Hólakoti.
— Þetta sund er framan við Brúnkollu og Dyrasker.
Þá kemur Bessakotið (uppáhaldsmið Pálma á Stöðinni, þ.e.
Pálma Sighvats, hins kunna sjómanns á Sauðárkróki); átti tóftir
kotsins að bera í Reykjabæinn eða fjósið. Brúnin er: Hólminn í
Fagranesmela.
Austur af Hólmanum er mest dýpi í Vesturálnum innan við
Drangey. Þar má miða skarðið í Drangey, kallað að vera um
Skarðið. Hálfvikan1 miðast aftur þannig: Hrolleifshöfði í Skarð-
ið milli Málmeyjar og Kringlunnar. Má leggja eftir þessari slóð
austur undir Kerlingarhrygg, sem er, þegar Kerlinguna við Drang-
ey ber í Hæringshlaup.
Fram af Reykjadiski er mið, sem Þrcell nefnist. Þar mun vera
smáhryggur í botninum. Mið á Þrælnum er: Sjóbúðirnar á Reykj-
um á bceinn (gamla bæinn).
Um þetta mið er til sú þjóðsaga, að í fyrndinni, þegar mikið
var sóttur sjór af Reykjaströnd, hafi þræll einn frá Reykjum
ávallt fiskað betur en aðrir. Fór hann eingöngu á þetta mið, sem
síðan var við hann kennt og kallað Þræll.
Einhvers staðar þarna fram af Diskinum heyrði ég gamla menn
tala um l.úðuholu, en ekki veit ég um mið á henni.
Norðaustur af Reykjadiski er Hraunbrúnin. Liggur hún eftir
miðinu Skefilsstaðafossinn undan Landsendanum. Þarna var oft
lögð lína og fékkst blandaður fiskur, stundum talsvert af lúðu-
lokum (smálúðu). Þarna vestar er mið, sem heitir að vera um
Timburhólinn. A Timburhólinn, sem er hóll sunnan og neðan
við Ingveldarstaðabæinn, að bera yfir Disklána, sem fyrr er nefnd.
Þá er mið enn grynnra og kallað að vera uppi á Steinkirkju. Mið-
aður er stór steinn eða strýta, sem kemur í ljós í fjallinu fyrir ofan
Reyki og á að bera við Skorurnar ( á Stólnum).
Grunnt undan Stólnum er sjaldan lögð lína. Þó bar það við eitt
vor stuttu eftir 1930, að fiskur gekk undir Stólinn, og þá svo um
munaði. Var hlaðafli dag eftir dag á trillurnar frá Sauðárkrók,
1 Sveinn Sölvason sagði mér eftir Þorvaldi Sveinssyni.
98