Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 108
SKAGFIRBINGABÓK
En sé það víst, hverja sveit þeir eigi og sú sveit sé nærri, er
réttast að leita strax þangað, en ef þér veitið styrk einhverjum,
sem ekki er sveitlægur hjá yður, skulið þér strax tilkynna mér það,
nema því aðeins, að þér fyrirfram náið samkomulagi við hlutað-
eiganda hreppstjóra. Og yfirhöfuð mælist ég þénustusamlega til,
að þér gefið mér skýrslu um ástand hreppsbúa yðar, hvað bjarg-
ræði snertir, og hverjum ráðum þér beitið til að hjálpa þeim, sem
bjargþrota kynnu að vera eða verða.
Skrifstofu Skagafjarðarsýslu, 28. marti 1868.
E. Briem.
Til hreppstjóranna í Akrahrepp.1
Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu hr. E. Briem hefur næstl.
20. júlí úrskurðað, að Einar bóndi Andrésson í Sigríðarstaðakoti
í Holtshrepp skuli frá þeim degi eiga framfærslurétt í Akra-
hreppi, og mælist jafnframt til, að Akrahreppur endurgjaldi Holts-
hreppi 53 kr. 83 aut, er honum hefur verið lagt, þá næstl. fardaga-
ár, úr sveitarsjóði þar.
Hreppsnefndinni hér í Akrahreppi getur engan veginn orðið
ljóst, eftir ítrekaðan lestur þeirra mörgu bréfa frá Holtshreppi
þessum Einari viðvíkjandi, að 7 rd. 12. sk. lán veitt Einari í marz
(svo undirstrikað) 1873 hafi verið nauðsynlegt og lögum sam-
kvæmt, og hefur hún því falið mér á hendur sem oddvita hennar
að skjóta téðum sýslumannsúrskurði um sveitfesti Einars bónda
Andréssonar á Sigríðarstaðakoti til amtsins háa yfirálits og lagfær-
ingar þessa hrepps fátækra sjóði í hag, hvar ég hér með auðmjúk-
legast leyfi mér í því ég legg hér með 21 fylgiskjöl, merkt 1, 2, til
21, sem er úrskurðurinn sjálfur.
I því ég skírskota til fylgiskjalanna sjálfra, dirfist ég að fara
nokkrum orðum um sumt af þeim.
1 Þetta ár voru hreppstjórar í Akrahreppi: Jóhann P. Hallsson, Þor-
leifsstöðum, og Jónas Jónatansson, Silfrastöðum. — K.B.
106