Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 121
ORNEFNI OG SAGNIR
að létta hjátrú þeirri, er á bletti þessum hvíldi, og eftir fárra ára
veru í Glæsibæ, var það eitt sumar, að hann sló alla Tjörnina. En
veturinn eftir brá illa við. Var það á þorra, að vinnumaður renndi
ánum að vanda að lind neðan við húsin. En þennan dag var hláka
og Staðará, sem er í talsverðri fjarlægð frá húsunum, var ótraust
yfirferðar. Þegar ærnar hafa drukkið úr lindinni, verða fyrir styggð
af hvolpi litlum, er á bænum var. Hlupu þær til árinnar og þegar
á ísinn, sem reyndist ónýtur. Drápust þar 18 ær, en hinum varð
bjargað með snarræði miklu. Einnig missti Bjarni tvö eða þrjú
hross, er fórust með kynlegum hætti þennan sama vetur. Varð
hann aldrei fyrir slíku fjártjóni fyrr eða síðar, enda bjó hann fá
ár eftir þetta í Glæsibæ, og bætti ekki um hag hans, fyrr en þaðan
var farið. — Síðan hefur enginn lagt í þá hættu að slá álaga-
blettinn.
Jóhannes Jóhannesson, smiður, búsettur á Siglufirði, bjó á
hálflendunni móti Bjarna síðari ár hans. Hann skildi eftir ósleginn
dálítinn blett af Tjörninni, en blettur sá varð minni með hverju
ári. Að sama skapi hnignaði efnahag Jóhannesar smám saman,
og þegar hann flutti frá Glæsibæ eftir 18 ára búskap, hafði sauð-
fé hans fækkað svo síðasta árið, að eftir var rúmlega í tvö kúgildi.
Fórst fénaður hans með ýmsu móti. Jóhannes fóðraði þó skepnur
sínar manna bezt og gætti fjár síns betur en margir þeir, sem
lítið fjártjón hljóta.
Einu litlu atviki má enn segja frá. — Eitt sumar á áliðnum
túnaslætti ætlaði Jóhannes að slá blett þann, er eftir var skilinn.
Var hann að ganga með piltum sínum í slægjuna, en þá fékk hann
skyndilega boð um, að grár hestur, sem hann átti, gott reiðhests-
efni, hefði fest sig á gaddavírsgirðingu þar skammt frá. Brá hann
þegar við með menn sína að losa hestinn og ætlaði seint að tak-
ast. Hafði vírinn rifið hestinn allmikið á öðrum bógnum og olli
helti á hestinum, það sem eftir var sumars. Varð þá ekkert af
álagablettslættinum, enda mun atvik þetta hafa slegið óhug nokkr-
um á Jóhannes og menn hans.
Loks skal þess getið, að eftir brottför Jóhannesar frá Glæsibæ
heíur mjög skipt um efnaástæður hans til batnaðar. — Rétt er
119