Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 78
SKAGFIRÐINGABÓK
á hendur henni birtar, en þær voru: í fyrsta lagi, að hún hefði undir
sig dregið með leynd gull og silfur það biskupi Jóni sáluga hefði
tilheyrt eða dómkirkjunni á Hólum, og í öðru lagi, að hún hafi í
ráðum verið og áeggjan við biskup Jón um nokkrar ólöglegar að-
tektir eða reiðir.
Niðurstaðan varð sú, að Helgu var dæmt að frýja sig með eiði
þar á staðnum, ella sé allt hennar lausafé undir konung fallið.
Hún vann eiðinn samdægurs og með henni tólf skilvísir menn og
konur svohljóðandi: að ekki hefði hún haft til sín af biskups Jóns
eða dómkirkjunnar peningum, um fram tilgreinda fjárhæð, sem
henni virðist hafa verið frjálst að hafa, síðan biskup Jón heitinn
síðast fór frá Hólum. — Síðara sakaratriðið kemur ekki meir fram
sérstaklega.
A sama hátt voru þeir tveir áðurnefndu menn, Jón og Gottskálk,
sem voru í fylgd með Helgu, skyldaðir til að frýja sig með eiði: „að
ei hefðu þeir til þess með henni riðið, að vilja traðka konungsrétti
eða hamla”. Þann eið unnu þeir strax þar á þinginu. Voru þau því
öll fríkennd af ákærum hinna dönsku manna (Fornbréfasafn, XII.
bindi, nr. 169).
Eftir því, sem hér hefur verið tilfært, sýnist ekki fjarri lagi að
álykta, að Helga hafi ekki verið til viðtals miðhlutann úr sumrinu
1551.
Augljóst er, að þeir tveir menn, sem nefndir eru í dómnum, hafa
verið mjög handgengnir Helgu og trúir þjónar. Þeir eru sagðir
hennar „meðfylgjarar", og þeir höfðu „riðið" með henni. Þetta
er fremur óljóst orðað. Vitanlega hafa þau ekki verið á ferðalagi
þennan tíma. En þau gátu hafa fylgzt að fyrir því. Orðið „reiðir" er
í ritgerð séra Þórðar yfirleitt notað um ferðir Jóns biskups, þá hann
hugðist efla vald sitt og hinnar katólsku kirkju, samanber og yfir-
reiðir biskups um umdæmi sitt. — Biskupasögurnar greina frá því,
eins og áður er að vikið, að nokkrir menn hafi verið með Helgu í
tjaldvistinni. Er lítill vafi á, að þessir tveir hafi verið þar á meðal.
Auk þess er líklegt, að þeir hafi aðstoðað hana við flóttann frá
Hólum.
En hverjir voru þessir menn, sem drógust þannig inn í mál bisk-
76