Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 80
SKAGFIRBINGABÓK
það út af trúmálum. Kom svo að lokum, að séra Olafur taldi sér
ekki óhætt heima að vera og flúði því suður á f jöll við annan mann
og dvaldi þar nokkurn tíma -—- ef til vill við Laugafell eða þar í
grennd •— unz Þorleifur Grímsson á Möðruvöllum, einn fremsti
fyrirmaður Eyfirðinga þá, tók hann með sér, er hann reið til Al-
þingis suður um sumarið (Biskupasögur, II. bindi bls. 445). Kynni
því Helga eða þeir, sem veittu henni forsjá, að hafa haft fyrir-
myndina þaðan.
En hvernig er nú aðstaðan til að dyljast í fjallinu Glóðafeyki?
Skal það að lokum athugað lítið eitt.
Glóðafeykir er, eins og alkunnugt er, austan megin Skagaf jarðar-
héraðs, nær miðju Blönduhlíðar, sem næst beint gegnt Varmahlíð.
Hann er á 10. hundrað metra hár yfir sjó, fráskilinn öðrum fjöllum
að norðan og sunnan af alldjúpum dölum, sem liggja þar austur í
fjallgarðinum, en hann er einn hinn hrikalegasti hér á landi, og er
Glóðafeykir áfastur honum að austan og þó sérstakt fjall að nokkru
leyti, sem síðar segir. Er hann eitt þeirra fjalla, sem Skagfirðingar
eru stoltir af. Lega fjallsins er reyndar allmjög frá norðvestri íil
suðausturs, en ekki er tekið tillit til þess hér, þegar höfuðáttirnar
eru nefndar. Ber að hafa það í huga.
Vestan frá séð mætti ætla, að fjallið væri flatt að ofan og ekki svo
lítið um sig. Svo er þó ekki. Það dregst saman bæði að norðan og
sunnan, eftir því sem ofar kemur, í hálf-pýramídlagaða brík, en
er þó ekki toppmyndað. Þar uppi er það í raun og veru ekki annað
en örþunnur, smátenntur klettaröðull, sem veit mót vestri, og er
varla gengt eftir honum sums staðar. Er bezt að láta Svein Páls on
náttúrufræðing og lækni lýsa fjallinu:
„Glóðafeykir er hátt fjall og einkennilega myndað. Hann er
skilinn frá fjöllunum í kring, og verður að ofanverðu næstum því
sem þunn brík, sem sneitt er af báðum endum á. Fjallið er hlaðið
upp af fjölmörgum blágrýtislögum, og er mjög torgengt" (Ferða-
bók, bls. 130).
Af þessari lýsingu mætti ætla, að Glóðafeykir væri hvorki vist-
legur né hentugur felustaður, því á þremur hliðum hans er engin
fylgsni að finna, og uppi á háröðlinum hefst enginn við. En hann er
78