Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 8

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 8
8 FRÁ RITSTJÓRA Hann rekur þróun umbreytinga í náttúruvísindamenntun á vesturlöndum á síðari hluta tuttugustu aldar sem hófst í Bandaríkjunum. Snúið var frá fyrri áherslu á þekkingu á fræðigreinunum eðlisfræði, efnafræði og líffræði og í staðinn lögð áhersla á að þjálfa nemendur sem litla vísindamenn. Meyvant byggir hér á hugmyndum Roberts E. Yager, prófessors í Iowa í Bandaríkjunum, sem hélt því fram að „náttúruvísindaleikurinn“ eins og hann kallaði þetta hefði aldrei verið leikinn, og þá ekki heldur í íslenskum grunn- og framhaldsskólum. Þar sem erfitt hefur reynst að ná samkomulagi um stefnu á þessu mikilvæga sviði menntunar hefur stöðnun ríkt í námskrárþróun í kennslu náttúruvís- inda, að mati Meyvants. Þótt þessar þrjár sögulegu greinar séu skrifaðar út frá mismunandi forsendum um kennslugreinar sem þróast hafa undir afar ólíkum formerkjum á mismunandi tímum fjalla þær allar um upphaf kennslufræði greinanna. Þeim er ætlað að vera hlutaðeigandi hvatning til að skoða þær tilraunir sem gerðar hafa verið til úrbóta og læra af þeim. Fylgjast þarf með slíkum tilraunum og varðveita niðurstöður til notkunar við frek- ari þróun skólastarfs í stað þess að henda því sem fyrir er og taka fyrirvaralaust upp nýtt, hversu spennandi sem það kann að virðast í svipinn. Annan lærdóm má draga af þessum greinum, nefnilega að bjóða þurfi kennurum stuðning við innleiðingu nýjunga og svo lengi þar á eftir sem nauðsynlegt er í stað þess að ætlast til þess að þær skjóti rótum í skólastarfi af sjálfsdáðum. Þarna er því að finna mikilvægan hagnýtan fróðleik og ábendingar um þróun skólastarfs. Síðan koma nokkrar greinar sem fjalla um skólastarf í nútíð; sú fyrsta um væntingar leikskólabarna til grunnskólagöngu. Jóhanna Einarsdóttir lýsir þar rannsóknarvinnu- brögðum sem beitt er til að fá fram hugmyndir ungra barna um það sem framundan er í skólagöngu þeirra og fjallar hún um þessar hugmyndir út frá forsendum barnanna sjálfra. Guðrún Alda Harðardóttir og Baldur Kristjánsson fjalla um rannsókn á viðhorf- um leikskólakennara og aðferðum við valdeflingu leikskólabarna sem er viðfangsefni Guðrúnar Öldu í doktorsverkefni hennar undir leiðsögn Baldurs. Þau byggja gagna- greiningu á líkani Sigrúnar Aðalbjarnardóttur og Roberts L. Selman um uppeldis- og menntunarsýn kennara. Hafdís Guðjónsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir segja frá rannsókn sem unnin var í samstarfi við nokkrar aðrar Evrópuþjóðir og leitast við að svara því hvort kennaranemar fái viðunandi undirbúning til að kenna í skóla án aðgreiningar. Niðurstaðan er að svo sé ekki og staðfestist þar með gamalt umkvörtunarefni margra almennra grunnskólakennara. Að lokum er grein um árangursríka beitingu atferlis- greiningar og stuðnings við 7–8 ára drengi sem hafa átt erfitt með að fylgja reglum skól- ans um hegðun. Slíkir nemendur hafa löngum verið aðaláhyggjuefni almennra kennara sem leitast við að kenna í anda skóla fyrir alla. „Nú er ég alveg búinn að fatta hvernig ég á að vera“ er haft eftir einum þátttakendanna sem breytti langvarandi erfiðri hegðun sinni til hins betra með stuðningi í grunnskóla í kjölfar virknimats og undir handleiðslu sérfræðings í atferlisgreiningu og sérkennara. Þessi grein Guðrúnar Bjargar Ragnars-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.