Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 120
120
Guðrún Alda Harðardóttir og Baldur Kristjánsson
(b) Samþættar starfsaðferðir teljast vera
þegar kennari notar tvíhliða aðferðir, t.d.
ef hann leiðir og leitar eftir sjónarmiðum
barnanna en á síðasta orðið eða börnin
eiga síðasta orðið.
(c) Samþættar og aðstæðubundnar starfsað-
ferðir teljast vera gagnkvæmar aðferðir,
sem geta verið í því formi að kennarinn
leiðir og leitar eftir sjónarmiðum barnanna,
trúir á getu þeirra til að taka afstöðu til
mála og leysa þau og hvetur þau til þess
(Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2007).
Niðurstöður
Hér er gerð grein fyrir niðurstöðum þátt-
tökuathugana og viðtala við leikskóla-
kennarana tvo er þeir svara spurningum
um það hvað þeir hafi helst í huga við
skipulagningu leikskólastarfsins og við-
tölin greind í ljósi fyrrnefndrar greiningar-
grindar Sigrúnar Aðalbjarnardóttur og
Selmans.
Guðný leikskólakennari
Guðný birtist rannsakanda sem athugul
og fræðilega örugg í starfi. Hún á auðvelt
með að lýsa athöfnum sínum og er meðvit-
uð um það sem hún gerir og hvers vegna.
Þegar hún lýsir til dæmis starfi sínu segir
hún: „Það geri ég líka meðvitað.“ Síðan
skýrir hún það nánar með því að benda
á hve mikilvægt sé að gera sér grein fyrir
kostum og göllum þess sem valið er, eða
með hennar orðum: „Mér finnst mikilvægt
að leikskólakennari geri sér grein fyrir
því hvað er gott og vont.“ Hér á Guðný
við val kennarans á námstilboðum leik-
skólans. Þegar Guðný talar um starf sitt
vísar hún gjarnan til fræða og á það jafnt
við um uppeldis- og kennslufræði (Reggio
Emilia), listgreinar og fræðigreinar utan
leikskólastarfsins. Þegar hún talar um
öryggisþörf einstaklinga segir hún til
dæmis: „í þerapíufræðunum, sko svo ég
tali nú aðeins um það“. Hún vísar einnig
til annarra faghópa, til dæmis segir hún:
„Þetta er svolítið sammerkt með til dæmis
prestum og kennurum, þeir vilja vera að
raða öllu alls staðar í sínu umhverfi.“ Hér
á Guðný við þörf einstaklinga fyrir að hafa
stjórn á hlutum, annars finnist þeim þeir
vera að missa tökin, eða með hennar orð-
um: „Þú veist, ef þeir eru að missa tökin á
því sem að þeir ráða yfir.“ Guðný telur að
þetta einkenni óörugga einstaklinga, eins
og hún segir: „Þetta er bara óttinn við hið
óþekkta.“
Guðný er þeirrar skoðunar að leikskóla-
árin eigi að einkennast af jákvæðni, styrk
og ákveðnu frelsi. „Börnum, þeim líður
bara svo miklu betur í því að fá að velja,
að fá að vera þau sjálf, fá að vera á sínum
forsendum – ekki á fullorðinsforsendum.“
Leikskólastarf eigi að vera á forsendum
barnanna sem þar eru, þau fái að velja að
gera það sem þeim finnst skemmtilegt.
„við komum alltaf að þessu aftur og aftur,
hvað langar þig að gera, hvað finnst þér
skemmtilegt?“
Guðný leggur áherslu á að hvert ein-
stakt barn sé virt og fái tækifæri til að vera
það sjálft, eða eins og hún segir: „börn
sem fá val, útkoman eru glöð börn ... Þú
ert með svo ómótaða einstaklinga sem eru
bara að fylgja sínu hjarta, ... eru ekkert
komnir með allar þessar umhverfisreglur.“
Guðnýju finnst að leikskólastarf megi ekki
vera þjakað af regluveldi, neikvæðni og