Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 71

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 71
71 Nýja stærðfræðin í barnaskólum en með fyrirhugaðri samræmingu stærð- fræðikennslunnar nú væri tvímælalaust stuðlað að víðtækari þekkingu og skilningi nemenda á öllum stigum og sviðum stærð- fræði. Víða erlendis færu fram umfangs- miklar tilraunir með innihald og fram- setningu kennslubóka, þar sem sérstakt tillit væri tekið til þess hluta nemenda sem miður sæktist námið (Stærðfræðikennarar lögðu all of mikið upp úr kennslu mengis, 1973). Blaðinu hafði sem sagt verið snúið við og farið var að kynna nýtt námsefni og skapa nýjar væntingar, en kennurum kennt um hvernig fór; þeir hefðu lagt of mikið upp úr kennslu mengis. Á meðan brugðust Námsflokkar Reykjavíkur við óskum foreldra um stuðning og buðu upp á námskeið fyrir foreldra í nýju stærðfræð- inni (Þuríður Árnadóttir, 1975). 3. mynd sýnir að skólaárið 1976–77 var Bundgaard-námsefnið alveg horfið í fyrsta bekk. Hefðbundið námsefni var einnig á undanhaldi og nýtt námsefni skólarann- sóknadeildar Menntamálaráðuneytisins að taka við (Menntamálaráðuneytið, skóla- rannsóknadeild, 1977). Það var ekki einungis á Íslandi sem við horf gagnvart nýju stærðfræðinni breyttust. Haft var á orði að sannfæring forgöngumanna nýju stærðfræðinnar í Bandaríkjunum hefði verið slík að nýja stærðfræðin hefði verið innleidd í barna- skóla af svipaðri sigurvissu og Napóleon bjó yfir er hann lagði í herför til Rússlands eftir að hafa lagt undir sig hálfa Evrópu. SMSG-námsefninu í Bandaríkjunum var hvorki vel tekið í barnaskólum né höfðu kennarar áhuga á að taka það upp. SMSG- námsefnið var umfangsmesta efnið af öllu því sem sett var fram á tímum nýju stærð- fræðinnar en framleiðslu þess var hætt árið 1972. Það var þýtt á fimmtán tungu- mál en barnaskólakennslan varð banabiti þess (Gjone, 1983). Þekktir stærðfræðingar höfðu námsefnið í flimtingum og rituð var fræg bók, Why Johnny Can‘t Add – The failure of the New Math (Kline, 1973), um mistök nýju stærðfræðinnar. Þá má geta þess að Bundgaard-námsefnið var síðar metið svo að það færi bókstaflegar eftir ýtrustu hugmyndum háskólamanna og gengi mun lengra en annað námsefni um nýju stærðfræðina sem þá var í boði í Dan- mörku (Høyrup, 1979). Ævintýrið um nýju stærðfræðina geymdist í hugum fólks og tók á sig ýmsar myndir. Eiður Guðnason alþingismaður spurði í umræðum á Alþingi 6. desember 1988 hver myndi ekki eftir nýju stærð- fræðinni sem í raun hefði þýtt að heilu árgangarnir af nemendum kynnu sáralítið í reikningi og gætu ekki reiknað í hugan- um. Nýja stærðfræðin eða mengjafræðin væru ein afdrifaríkustu mistök sem gerð hefðu verið í íslenska skólakerfinu (Eiður Guðnason, 1988). Í skýrslunni Menntun í mótun. Þróun menntastefnu á Íslandi í evrópsku samhengi (Menntamálaráðuneytið, 2010) segir í niður stöðum af hópumræðum á ráðstefnu um efnið að gera þurfi kennsluaðferðir meira aðlaðandi. Þetta sé þó flókið mál. Þannig hafi t.d. kennsla í nýju stærðfræð- inni á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar mistekist. Kennslan þurfi að tengja saman skilning og reikning, þetta séu ekki andstæður. Kennari á níræðisaldri, sem var í hópi reyndra kennara þegar nýja stærðfræðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.